Gagnaöflun skattrannsóknarstjóra um rekstur félags í Belís talin lögmæt

Lands­réttur komst í lok janúar að þeirri niður­stöðu að skatt­rannsóknar­stjóra hefði verið heimilt að sækja bókhalds­gögn um félag í Belís til endur­skoðunar­fyrirtækis í lok maí í fyrra. Málið virðist tengjast rannsókn embættisins á Samherja­samstæðunni.

Af efnisatriðum málsins má ráða að um sé að ræða gagnaöflun sem tengist rannsókn skattrannsóknarstjóra á Samherjasamstæðunni.
Af efn­is­at­riðum máls­ins má ráða að um sé að ræða gagna­öflun sem teng­ist rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra á Sam­herj­a­sam­stæð­unni. Mynd: Bára Huld Beck

Starfs­menn embættis skatt­rannsóknar­stjóra komu í höfuð­stöðvar íslensks bókhalds- og þjónustu­fyrirtækis þann 19. maí í fyrra með beiðni um að fá afhent gögn um félag sem skráð er í Mið-Ameríku­ríkinu Belís. Tekist hefur verið á um það fyrir dómstólum hvort gagna­öflunin hafi verið lögmæt. Nýleg niður­staða Lands­réttar er að það hafi hún verið.

Theodóra Emils­dóttir, settur skatt­rannsóknar­stjóri, segist í svari við fyrir­spurn Kjarnans ekki geta veitt neinar upplýsingar eða stað­festingu á því um hvaða félög er að ræða, en efnis­atriði í úrskurðum Lands­réttar og Héraðs­dóms Reykja­víkur gefa þó til kynna að þarna sé fjallað um gagna­öflun sem tengist yfir­standandi rannsókn skatt­rannsóknar­stjóra á Samherja­samstæðunni.

Í úrskurði Lands­réttar frá 25. janúar og úrskurði Héraðs­dóms Reykja­víkur frá 15. desember eru öll nöfn fyrir­tækja og einstaklinga afmáð, en þó má lesa að eigandi félagsins í Belís sé félag á Kýpur sem sé í eigu íslensks manns, sem sé með skatta­lega heimilis­festi á Spáni og hafi ekki verið með heimilis­festi á Íslandi í um 16 ár.

Skattrannsóknarstjóri lofaði að skoða ekki gögnin fyrr en lögmætið væri ljóst

Deilt hefur verið um heimild skatt­rannsóknar­stjóra til þess að skoða bókhald þessa eina fyrir­tækis í Belís frá því skömmu eftir að það fékkst afhent frá endur­skoðandanum í maí.

Fram kemur í úrskurðinum að nokkrum dögum eftir að skatt­rannsóknar­stjóri fékk gögnin í hendur, eða 28. maí, hafi embættið farið fram á að Belís-félagið og endur­skoðandinn veittu frekari gögn um reksturinn. Einnig var óskað var eftir því að eigandi félagsins kæmi til skýrslu­gjafar þann 11. júní.

Félagið hafnaði að afhenda frekari gögn, í svarbréfi til skatt­rannsóknar­stjóra 5. júní. Í bréfinu frá lögmanni Belís-félagsins var því einnig komið á framfæri að endur­skoðunar­fyrirtækið mæltist til þess að skatt­rannsóknar­stjóri endur­kallaði beiðni sína eða bæri hana undir dómstóla.

Þessu bréfi svaraði skatt­rannsóknar­stjóri 12. júní og sagðist hafa verið heimilt að afla umræddra gagna og taldi að rétt hefði verið staðið að öflun þeirra. Einnig sagði skatt­rannsóknar­stjóri að eðlilegra væri að endur­skoðunar­fyrirtækið færi sjálft með kröfu sína fyrir dóm.

Embættið lýsti því þó yfir að gögnin yrðu ekki skoðuð fyrr en búið væri að leysa úr ágreiningi um lögmæti beiðnarinnar, sem nú hefur verið gert.

Grunur á að raunverulegum yfirráðum hafi verið leynt

Í úrskurði Lands­réttar má lesa að rannsókn skatt­rannsóknar­stjóra beinist að bókhaldi og skatt­skilum íslensks félags og að því félagi hafi verið tilkynnt bréflega 19. maí í fyrra að rannsókn væri hafin á skatt­skilum þess. Sú rannsókn beinist meðal annars að ætlaðri skatt­skyldu vegna hagnaðar þessa félags í Belís á árunum 2013-2017.

Í greinar­gerð sem skatt­rannsóknar­stjóri sendi Lands­rétti og vísað er til í úrskurðinum kemur fram að grunur leiki á því að íslenska félagið hafi leynt raun­verulegu eignar­haldi eða stjórnunar­legum yfirráðum sínum á Belís-félaginu, sem væri skráð í lágskatta­ríki.



Með því hefði íslenska félagið komið Belís-félaginu undan skatt­skyldu hér á landi vegna tekna á rekstrar­árunum 2013-2016. Samkvæmt úrskurði Lands­réttar er það mat skatt­rannsóknar­stjóra að gögnin, sem nú hefur komið í ljós að aflað var með lögmætum hætti, kunni að hafa „verulega þýðingu“ við rannsókn málsins.

Áhöld hafa áður verið uppi um það hvort erlendum félögum innan Samherja­samstæðunnar hafi sumum hverjum í reynd verið stjórnað frá Íslandi, af íslenskum einstaklingum.

Þetta var til dæmis álitaefni í máli Seðla­banka Íslands gegn Samherja, en að mati bankans var þónokkrum félögum samstæðunnar í reynd stjórnað frá Íslandi og því hefðu erlendu félögin átt að skila gjaldeyri til landsins eins og innlendir aðilar.

„Þó að þetta væri sölu­fé­lag sem velti millj­örðum þá var eng­inn sem tók upp sím­ann og tók við sölupönt­un,“ sagði Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður Seðla­bankans fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur í september­mánuði, um félagið Katla Seafood Limited, sem eitt sinn var skráð í Belís í Mið-Ameríku en síðar á Kýpur.

Eins og Kjarninn sagði frá um helgina virðist það hvaða ákvarðanir í rekstri erlendra félaga Samherja­samstæðunnar voru teknar á Íslandi og hverjar í útlöndum einnig skipta máli í rannsókn embættis héraðs­saksóknara.

Héraðs­saksóknari fékk í byrjun desember bókhald Samherja­samstæðunnar afhent frá endur­skoðunar­skrif­stofunni KPMG með dóms­úrskurði. Embættið fékk einnig upplýsingar um vinnslu einnar skýrslu sem KPMG vann fyrir Samherja á árunum 2013 og 2014 og fól í sér greiningu á skipulagi samstæðunnar á þeim tíma.

Sam­kvæmt drögum að skýrslu frá sér­fræð­ingum KPMG, sem byggði m.a. á við­tölum við starfs­fólk Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, var for­stjór­inn og stjórn­ar­for­mað­ur­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son nær ein­ráður í fyr­ir­tæk­inu og með alla þræði í hendi sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár