Segir pólitíska andstæðinga hafa notað fötlunina gegn sér

„Víst getur fatlaður maður verið formaður stjórn­málaflokks,“ skrifar Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk­ing­ar­innar og formanns­fram­bjóðandi.

Pressphotos.biz / Geiri
Pressphotos.biz / Geiri Mynd: Pressphotos/Geirix

Helgi Hjörvar, formanns­fram­bjóðandi í Samfylkingunni og þingmaður til margra ára, segist í fyrsta sinn á 20 ára stjórn­málaferli finna fyrir fordómum vegna sjón­leysis. Helgi fjallar um málið í einlægri færslu á Facebook-síðu sinni undir yfir­skriftinni „Víst getur fatlaður maður verið formaður stjórn­málaflokks“. 

Helgi segir að sem borgar­fulltrúi og þingmaður hafi hann aldrei orðið var við fordóma og heldur talið skortinn á sjóninni styrkja sig fremur en hitt.

„Að vísu nota keppinautar sjónina eins og annað til að draga úr trúverðug­leika með ummælum eins og: „Hann sér nú meira en hann vill vera láta,“ o.s.frv. En það er bara venjuleg illmælgi sem stjórn­málamenn þurfa að þola og myndi bara beinast að einhverju öðru ef ekki væri sjón­missirinn,“ skrifar Helgi og bætir við:

„En núna mæti ég semsagt í fyrsta sinn viðhorfum um að ég geti ekki ráðið við það verkefni að vera formaður Samfylkingarinnar vegna fötlunar minnar. Einn skrifar um þetta á opinberu fésbókar­síðunni minni, ég hef fengið tölvupóst með efasemdum um getu mína til formennsku að þessu leyti og ýmsar athuga­semdir í símtölum og samtölum, fyrir nú utan það sem fólk ræðir þar sem ég heyri ekki til. Mér hefur alltaf reynst best að tala opinskátt og hispurs­laust um fötlun mína og vil nota þetta tækifæri til að ræða þessar efasemdir og fordóma.“

Hann bendir á að fólk með fötlun hafi starfað í sveitar­stjórnum og á þingi í vaxandi mæli og flestir telji fatlaða eiga erindi þangað. „En kannski það sé ekki jafn sjálfsagt að við eigum heima í fremstu forystu, svo sem ráðherra­embætti eða flokks­formennsku. Að minnsta kosti verð ég fyrst var svona efasemda nú þegar málið snýst um flokks­formennsku. Mér vitanlega hafa raunar aldrei verið kjörnir á Íslandi flokks­formenn eða ráðherrar úr röðum fatlaðra, þó Magnús Kjartansson heitinn hafi orðið fatlaður í embætti. Mér gæti hafa yfirsést einhver eða einhverjir fatlaðir sem kjörnir hafa verið í slíkar stöður en það er a.m.k. afar fátítt þó öryrkjar séu nokkuð stór hluti lands­manna. Kannski er það svo að sumum finnist við ágæt með en bara ekki í æðstu forystu.“

Hann segir sumt af þessu aðeins vera andstyggilega fordóma sem ekkert sé hægt að gera við. „Öll þurfum við að fást við einhverja erfið­leika og ég þarf ekki að kvarta yfir hlut­skipti mínu en fáfræði og fordóma þarf að ræða enda stafa sumar efasemd­anna af skorti á reynslu og þekkingu. Fólk spyr sig spurninga eins og hvort formaður þurfi ekki að geta lesið prentað mál, hvort hann geti nokkuð haft þá yfirsýn sem þarf, áttað sig nægilega fljótt á málum til að hafa forystu fyrir okkur o.s.fr.“

Þá bendir hann á að alblindir menn hafa t.d. verið ráðherrar félags­mála í Svíþjóð og innan­ríkismála í Bretlandi. „Fötlunin á því ekki að koma í veg fyrir að menn ráði við slík verkefni. Þegar ég var formaður þing­flokks sósíal­demókrata í Norður­landaráði sögðu sænskir kollegar mínir mér frá því að Bengt Lindqvist, blindi félagsmála­ráðherrann, hefði verið sá sem kenndi þeim að rata um það mikla völundarhús sem sænska þingið er. Því hann hafði auðvitað lagt húsa­skipan betur á minnnið en nokkur annar. Og David Blunkett var ekki bara öflugur ráðherra heldur tókst líka að eiga ekta breskt hneykslismál eins og ófatlaður væri.“

Helgi segist telja að hann geti ekki síður en aðrir gegnt æðstu trúnaðar­störfum, en viðurkennir að hann lesi ekki með sama hætti og aðrir og verði að reiða sig á endursögn annarra um margt.

„Ég á erfitt með að vera virkur á fésbók, ræð illa við spjall þar eða að fylgjast með vinum mínum einsog ég vildi. Það getur líka verið óheppilegt fyrir stjórn­málamann að sjá ekki kjósendur, virða þá ekki viðlits, standa einn úti í horni af því að maður sér engan sem maður þekkir o.s.frv. Auðvitað eru þessir gallar og margir fleiri á því að hafa sjón­lausan mann í pólitík en mér hafa alltaf þótt þeir léttvægir hjá kostunum. Því kostirnir eru m.a. þeir að maður býr að lífs­reynslu, hefur reynt það hvað samfélag, samhjálp og velferð skiptir miklu, þekkir þá skipulögðu fátækt sem öryrkjum er búin í tekju­tengingar­skóginum og auðvitað mörgum fleiri hópum. Það sem aðrir sjá man ég oft líka betur en þeir.“ 

Að lokum skrifar hann: „Ég fullvissa samfylkingar­fólk um að verði ég fyrsti fatlaði maðurinn til að leiða stjórn­málaflokk á Íslandi þá verður ekki við sjónina að sakast ef ég veld því ekki, heldur einhvern af öllum hinum göllunum sem er að finna í genasafni mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár