Hvort trúir þú Ford eða Kavanaugh?

Spennu­þrungnar yfirheyrslu fyrir nefnd Banda­ríkjaþings vegna skipans Brett M. Kavanaugh í Hæstarétt, munu draga dilk á eftir sér.

Christine Blasey Ford, doktor í sálfræði og prófessor við University of Palo Alto og Stanford í Kaliforníu, segir Brett M. Kavanaugh, sem Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur þegar útnefnt sem dómara við Hæstarétt Banda­ríkjanna, hafa brotið gegn sér kynferðis­lega þegar þau voru á mennta­skólaaldri.

Hún greindi sálfræðingi sínum frá atvikinu árið 2012 og manni sínum einnig. Hún segist ekki hafa getað rætt um atvikið árum saman eftir að það kom upp, og sagði frammi fyrir þingnefnd í dag að hún væri 100 prósent viss um að það hefði verið Brett Kavanaugh sem braut gegn henni.

Ford sak­ar Kav­an­augh um að hafa reynt að af­klæða hana, að hafa haldið henni fang­inni ásamt öðrum manni, og káfað á henni þegar hún var 15 ára og hann 17 ára, árið 1982.

Í kjöl­far þess að Ford greindi frá reynslu sinni eft­ir að til­kynnt var að hann kæmi til greina sem dóm­ari við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna hafa tvær kon­ur til viðbót­ar stigið fram.

Ford sagði atvikið hafa markað líf sitt, og haft mikil andleg og líkamleg áhrif á hana. Hún muni enn hlátur þeirra sem brutu gegn henni, og það sitji fast í minningu hennar.

Kavanaugh kom einnig fyrir þing­nefndina og neitaði með öllu að hafa brotið gegn henni, og sagðist ekkert hafa fela. Hann hafi á ferli sínum marg sinnis verið rann­sakaður af FBI, meðal annars þegar hann starfi fyrir George W. Bush í Hvíta húsinu og sem dómari við alríkis­dómstól.

„Þetta hefur tætt fjöl­skyldu mína í sundur,“ sagði Kavanaugh, með tárin í augunum, en hann hann var í miklu uppnámi meðan hann las upp yfir­lýsingu sína. Hann vitnaði í sínar eigin dagbækur, máli sínu til stuðnings, og sagði frásögn Ford ekki passa við það sem hann hefði skrásett. Hann hefði ekki verið í samkvæmi með Ford þessa helgi sem hún hefði nefnt, og dagbækurnar sýndu það.

Ford var staðföst í sínum vitnis­burði og sagðist ekki efast um að það var Kavanaugh sem braut gegn henni en ekki einhver annar.

Miklar tilfinningar voru meðal þing­nefndar­manna. Úr hópi Repúblikana mátti heyra, að þeir trúðu frekar Kavanaugh og lét einn þeirra þau orð falla að þetta væri líklega svívirðilegasta árás sem sést hefði í stjórn­málum nokkru sinni í Banda­ríkjunum.

Demó­kratar sögðu ekki vera hægt að trúa frekar Kavanaugh en Ford, bara vegna þess að hann benti á dagbækur sínar. Það þyrfti meira til, og það væri heldur ekki hægt að slá trúverðugan framburð Ford útaf borðinu.

Hún hefði líka gengið í gegnum mikla erfið­leika og fjöl­skylda hennar, vegna þeirrar ákvörðunar hennar að stíga fram og segja frá brotinu gegn henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár