Ölfus að semja við Hjallastefnuna – Foreldrar og starfsmenn ósáttir

Unnið er að því að semja við Hjalla­stefnuna um að taka við rekstri leik­skólans Bergheima. Íbúar í Þorláks­höfn og fyrr­verandi starfs­menn lýsa megnri óánægju og tala um virðingar­leysi. Elliði Vignisson bæjar­stjóri segir að verið sé að auka gæði leik­skóla­starfsins.

Styr um ákvörðun bæjarstjórnar
Styr um ákvörðun bæj­ar­stjórnar Ekki eru allir íbúar Þor­láks­hafnar ánægðir með ákvörðun bæj­ar­stjórnar um að ganga til samn­inga við Hjalla­stefn­una um að taka yfir rekstur leik­skól­ans í bænum.

Starfs­fólki leik­skólans Bergheima í Þorláks­höfn er verulega brugðið eftir að tilkynnt var á mánudag um að sveitar­félagið Ölfus hefði hafið samninga­viðræður við Hjalla­stefnuna um að taka yfir rekstur leik­skólans. Ekkert samráð hafi verið haft við starfs­fólk þar um og óttast það um stöðu sína þess vegna. Þá gagnrýna íbúar í Þorláks­höfn að ef af samningum verði þá sé þeim nauðugur einn kostur að senda börn sín á leikskóla sem fylgi stefnu sem einka­aðili móti, auk þess sem það skjóti mjög skökku við að samninga­viðræður séu hafnar án þess að neitt samráð hafi verið haft við forelda.

Bæjar­stjórn samþykkti á fundi sínum á mánudaginn að ganga til viðræðna við Hjalla­stefnuna um rekstur leik­skólans Bergheima. Sex fulltrúar bæði meirihluta og minni­hluta greiddu atkvæði með því en forseti bæjar­stjórnar, Gestur Þór Kristjánsson, sat hjá. Málið var hið eina sem var á dagskrá bæjar­stjórnar á þessum fundi.

Starfsmenn óttast um stöðu sína

Berg­heimar eru eini leikskólkinn sem rekinn er í Þorláks­höfn og því hafa íbúar Þorláks­hafnar takmarkað val um að senda börn sín á annan leikskóla. Starfs­menn Bergheima sem Stundin ræddi við vildu ekki koma fram undir nafni enda sögðust þeir óttast um stöðu sína. Þeir lýstu því þó að tilkynning hefði verið þeim reiðar­slag og högg fyrir það og þau teldu framtíð sína í óvissu. Bæði væri alls óljóst hvort starfs­menn myndu halda vinnu sinni en eins þyrfti starfs­fólk þá að undir­gangast þá hugmynda­fræði sem Hjalla­stefnan vinni eftir, sem inniber meðal annars kynja­skiptingu barnanna á leik­skólanum.

Gagnrýni­vert væri að ekkert samtal hefði átt sér stað heldur aðeins tilkynnt að samninga­viðræður væru hafnar. Enginn hafi vitað af þessu innan leik­skólans og það hafi verið fyrst á mánudaginn sem starfs­fólk hafi heyrt af málinu þegar fulltrúar bæjar­stjórnar og hópur frá Hjalla­stefnunni hafi mætt á fund starfs­fólks og þau upplýst um að hafnar væru viðræður um að Hjalla­stefnan tæki við rekstri Bergheima. Þá var einnig gagnrýnt að fulltrúar Hjalla­stefnunnar væru þegar byrjaðir að hafa afskipti af leik­skóla­starfinu og byrjaðir að kalla starfs­fólk á fundi til viðræðna.

Í athuga­semdum á Facebook-síðu Hafnar­frétta, frétta­miðils Þorlákshafnarbúa, þar sem frétt um málið er deilt, gagnrýna íbúar mjög að ekki skuli hafa verið haft samráð við þá um samninga­viðræðurnar. Aðferða­fræði Hjalla­stefnunnar sé umdeild og það sé skrýtið að foreldrum bjóðist ekki annar valkostur.

Segir vinnubrögðin ófagleg

Hrafnhildur Hlín Hjartar­dóttir er íbúi í Þorláks­höfn, á barn á Berg­heimum, er leik­skóla­kennari og fyrr­verandi starfs­maður Bergheima. Hún er verulega ósátt við hvernig staðið er að málinu öllu. „Þetta er algjört virðingar­leysi við starfs­menn og foreldra. Það er virðingar­leysi að taka svona stóra ákvörðun um stefnu­mótandi breytingu án þess að tala við kóng né prest.“

„Það er eins og þessu sé bara kastað út af einhverju skrifstofu­fólki sem hefur engan skilning á starfi leik­skólans“

Segir ákvörð­un­ina glapræðiHrafn­hildur Hlín Hjart­ar­dóttir segir allt of langt gengið með því að hefja samn­inga við Hjalla­stefn­una án þess að ráðg­ast við kóng eða prest.

Hrafnhildur bendir á að þær upplýsingar sem hafi borist um málið, og komi frá sveitar­félaginu, séu mjög misvísandi. Greint hafi verið frá því að búist sé við að Hjalla­stefnan taki við rekstrinum á næstu dögum til að mynda en svo sé nú talað um að setja eigi á fót stýrihóp með aðkomu foreldra og starfs­manna. „Það eru allir að fara í sumarfrí, er ætlast til þess að fólk vinni í stýrihóp í sumar­fríinu sínu eða á þá bara ekki að hafa það með í ráðum. Hvað á eiginlega að gera? Þetta eru ekki fagleg vinnu­brögð, það er eins og þessu sé bara kastað út af einhverju skrifstofu­fólki sem hefur engan skilning á starfi leik­skólans.“

Hrafnhildur segir að henni hugnist ekki að hafa ekki val um að senda sitt barn annað en á Hjalla­stefnu­leikskóla. „Það er ábyggilega margt þarna gott en það er líka margt sem ég set spurninga­merki við. Mér finnst algjört glapræði að henda þessu svona fram og halda að enginn hafi skoðun á þessu. Það er gengið allt of langt, með frekju og virðingar­leysi.“

Bæjarstjóri segir samráð verða haft

Elliði Vignisson, bæjar­stjóri Ölfuss, segir að engar breytingar verði á aðgengi barna í Þorláks­höfn að leik­skólanum, leik­skólagjöld og opnunar­tími verði óbreytt og sveitar­félagið hafi eftir sem áður sömu stjórnunar­legu aðkomu að leik­skólanum og verið hefur. Hins vegar muni, ef samningar takist, leik­skólinn taka upp Hjalla­stefnuna.

Hvað varðar gagnrýni íbúa, foreldra og starfs­manna á að ekki hafi verið haft samráð við þau vill Elliði ekki taka undir það. „Ferlið er innan við tveggja sólar­hringa gamalt og það er ekki búið að semja við Hjalla. Bæjar­stjórn kom saman klukkan fjögur á mánudaginn og ákvað að taka upp viðræður við Hjalla. Innan við klukku­tíma síðar er starfs­mönnum tilkynnt um að taka eigi upp viðræður við Hjalla og að myndaður verði stýri­hópur um framkvæmdina með aðkomu starfs­manna og foreldra. Innan við tveimur tímum frá ákvörðun er búið að tilkynna foreldrum þetta. Innan við þremur tímum eftir að fundur er haldinn er búið að senda frétta­tilkynningu á bæjar­miðilinn og tilkynna íbúum þetta. Núna hefjast samninga­viðræður, með aðkomu sveitar­félagsins, með aðkomu Hjalla, með aðkomu foreldra og með aðkomu starfs­manna.“

Athygli vekur, í ljósi þess sem Elliði segir hér að framan, að Stundin hefur upplýsingar um að einhverjum starfs­mönnum Bergheima hafi verið tilkynnt um að semja ætti við Hjalla­stefnuna um rekstur leik­skólans þegar í hádeginu síðastliðinn mánudag, þó að fundur bæjar­stjórnar þar sem ákvörðun var tekin hafi þá ekki enn farið fram. Eins voru fulltrúar Hjalla­stefnunnar mættir á svæðið áður en ákvörðunin var tekin.

Eðlilega er starfsfólki brugðið

Elliði segir að það muni taka þrjá til fjóra mánuði, hið minnsta, að klára samninga­viðræður. Hann segir að lögð hafi verið áhersla á að eyða óvissu sem starfs­menn og foreldrar væru í vegna þessa og því hafi strax verið upplýst um hver staðan væri. Í dag muni Hjalla­stefnan funda með foreldrum til að kynna þeim stöðuna og á mánudaginn muni bæjar­fulltrúar funda með foreldrum.

„Það er ekki verið að fara þessa leið af því að allt sé ónýtt, það er verið að reyna að gera góðan rekstur enn betri“

Spurður af hverju viðræður við Hjalla­stefnuna um rekstur á Berg­heimum væru hafnar segir Elliði að bæjar­fulltrúar hafi mikla trú á Hjalla­stefnunni, þar séu sérfróðir aðilar um rekstur leikskóla og vilji bæjar­stjórnar sé að með þessu sé hægt að gera góðan leikskóla enn betri. „Það er ekki verið að fara þessa leið af því að allt sé ónýtt, það er verið að reyna að gera góðan rekstur enn betri. Hjalli hefur sérfræði­þekkingu á rekstri leikskóla sem við höfum ekki, við erum að reka allt frá dráttar­báti og fráveitu­kerfi upp í leik- og grunn­skóla.“ Verið sé að leita leiða til að gera hlutina betur.

Spurður hvernig starfs­mönnum leik­skólans hafi orðið við þessi tíðindi segir Elliði að þeim hafi brugðið við. „Þeim var bara eðlilega brugðið, og mjög auðvelt að bera virðingu fyrir því. Þetta er bæði starf sem fólk brennur fyrir að vinna og þetta er líka lífs­viðurværi þess.“

Elliði segir að í gær hafi starfs­menn Hjalla­stefnunnar tekið viðtöl við starfs­fólk leik­skólans og hann hafi fengið þær upplýsingar að þeim fundum að yfir­gnæfandi hluti starfs­manna myndi halda áfram. Það hafi verið von bæjar­stjórnar. Spurður hvort skilyrði þess efnis hafi verið sett áður en til samninga­viðræðna var gengið neitaði Elliði því. „Við stjórnum ekki ráðningum hjá Hjalla. Okkar von er sú að allir starfs­menn haldi sínum stöðum. Allur réttur starfs­manna verður virtur, allt sem þeir hafa áunnið sér mun halda sér. Til viðbótar verður vinnutími þeirra styttur, um fimm klukku­tíma á viku fyrir starfs­menn í fullu starfi og laun þeirra hækka um einn launa­flokk. Starfs­mönnum verður ekki fækkað, þetta er ekki aðgerð til að skera niður eða draga úr starfsmanna­kostnaði. Þetta er fyrst og fremst til að auka gæði þjónustunnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár