Krefur forstjóra ÁTVR um opinbera afsökunarbeiðni í prent- og netmiðlum

Vín­kaup­mað­ur­inn Arnar Sig­urðs­son fer fram á að Ívar J. Arndal for­stjóri ÁTVR biðji hann opin­ber­lega afsök­unar og aft­ur­kalli kærur sem lagðar hafa verið fram gagn­vart honum og fyr­ir­tækjum hans.

ÁTVR hefur lagt fram kæru gegn Arnari og fyrirtækjum hans fyrir meint skattsvik.
ÁTVR hefur lagt fram kæru gegn Arnari og fyr­ir­tækjum hans fyrir meint skatt­svik. Mynd: RÚV

Arnar Sig­urðs­son vín­kaup­maður, sem ÁTVR hefur sakað um brot á lögum um virð­is­auka­skatt, hefur farið fram að það við Ívar J. Arndal for­stjóra ÁTVR að hann aft­ur­kalli kærur á hendur Arnari og fyr­ir­tækjum hans hér­lendis og erlendis og biðji sig opin­ber­lega afsök­unar með heil­síðu­aug­lýs­ingum í prent­miðlum og vef­borðum á tveimur víð­lesn­ustu frétta­síðum lands­ins.

Þetta kemur fram í bréfi sem Arnar stíl­aði á rík­is­for­stjór­ann í dag, en kærur ÁTVR á hendur Arnari og félag­inu Sante ehf. og franska fyr­ir­tæk­inu Santewines SAS voru sendar út undir lok síð­asta mán­aðar. Arnar gefur Ívari tvo daga til að bregð­ast við kröfum sínum.

Vín­kaup­mað­ur­inn Arnar segir að ásak­anir Ívars í sinn garð séu rangar og sé „alvar­legt mál“ og hljóti að vera for­dæma­laust „að for­stjóri rík­is­stofn­unar komi fram opin­ber­lega og ásaki sam­keppn­is­að­ila rang­lega um skatta­laga­brot.“

Hann segir að með „lág­marks fyr­ir­höfn hefði mátt leiða í ljós þá aug­ljósu stað­reynd að Santewines SAS hefur bæði íslenska kenni­tölu og virð­is­auka­skatts­númer“ og gefi út reikn­inga með 11 pró­sent virð­is­auka­skatti í sam­ræmi við gild­andi lög og hafi gert frá því að félagið hóf starf­semi hér á landi.

„Allar ásakanir um skattsvik og undanskot eru rógburður“

„Hin íslenska kennitala og virð­is­auka­skatts­númer voru skráð hjá Skatt­inum í apríl sl. en félagið hóf starf­semi í maí. Gjald­dagi virð­is­auka­skatts er einum mán­uði og fimm dögum eftir lok hvers almenns upp­gjörs­tíma­bils sem í til­viki Santewines SAS er tveir mán­uðir. Til dæmis er gjald­dagi vegna maí og júní þann 5. ágúst nk. Inn­heimtur virð­is­auka­skattur frá upp­hafi starf­sem­innar er því ekki í gjald­daga fall­inn. Engin van­skil hafa orðið. Öll aðflutn­ings­gjöld vegna inn­flutn­ings Sante ehf. á áfengi, þ.m.t. áfeng­is­gjald, virð­is­auka­skattur og skila­gjald hefur þegar verið greitt til rík­is­sjóðs. Allar ásak­anir um skatt­svik og und­an­skot eru róg­burður,“ skrifar Arnar.

Vín­kaup­mað­ur­inn gerir kröfu um að kær­urnar frá ÁTVR verði dregnar til baka án tafar og „afsök­un­ar­beiðni verði birt með heil­síðu aug­lýs­ingum í Morg­un­blað­inu, Við­skipta­blað­inu og Frétta­blað­inu og vef­borðum í eina viku (7 daga) á vef­síð­unum visir.is og mbl.is.“

Einnig segir Arnar að í afsök­un­ar­beiðn­inni skuli koma fram að kær­urnar hafi verið dregnar til baka þar sem ekki hafi reynst fótur fyrir þeim og að beðist sé afsök­unar á því að hafa haft frammi rangar sak­ar­giftir gagn­vart honum og félög­unum Sante ehf. og Santewines SAS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár