Örplast greint í nauta- og svínakjöti í fyrsta sinn

Plast­agnir finnast í svína- og nauta­kjöti, einnig í blóði lifandi svína og nautgripa sem og fóðri þeirra samkvæmt nýrri rannsókn hollenskra vísinda­manna.

Svín á leið til slátrunar.
Svín á leið til slátr­unar. Mynd: EPA

Örplast hefur fundist í svína- og nauta­kjöti í fyrsta sinn sem og í blóði nautgripa og svína á búum. Þetta er niður­staða nýrrar rann­sóknar vísinda­manna við Vrije-háskóla í Amsterdam. Þeir fundu plast­agnir í meirihluta sýna sem þeir tóku úr bæði kjöti og mjólkur­vörum og í hverju blóðsýni sem þeir tóku af lifandi dýrum á búum.

Örplast fannst einnig í öllum sýnum sem tekin voru úr fóðri dýranna sem þykir benda til þess hvernig agnirnar komast í dýrin. Afurðunum, kjötinu og mjólkur­vörunum, var svo einnig pakkað í plast sem gæti verið önnur leið.

Þetta eru sömu vísinda­menn og greindu frá því í mars að örplast hefði fundist í manna­blóði. Við rann­sóknina á dýrunum og kjötinu notuðu þeir sömu aðferðir. Þeir segja að þegar örplast komist inn í líkama manna og dýra berist það með blóð­rásinni til líffæra þar sem það geti safnast upp.

Fjallað er um rann­sóknina í breska blaðinu The Guardian og þar segir að enn sé ekki vitað með vissu hver áhrif örplasts séu á heilsu manna og dýra. Hins vegar hafi rann­sóknir á rannsóknar­stofum sýnt að örplast geti farið inn í frumur. Þá benda þeir jafnframt á að vitað er að aðrar smáar agnir á borð við svifryk geti haft mikil heilsufars­vandamál og valdi dauða milljóna manna á hverju ári.

Örplast um alla jörð

Örplast hefur fundist um alla jörðina, allt frá tindi Everest til heimskauta­svæðanna beggja. Einnig hefur það fundist á dýpstu hafs­botnum.

Áður hafði verið sýnt fram á að fólk innbyrðir örplast með mat og drykkjar­vatni. Þá hefur einnig verið sýnt fram á að við öndum örplasti í andrúms­loftinu að okkur.

Rannsókn hollensku vísinda­mannanna er aðeins byrjunin á frekari rann­sóknum, bæði þar í landi og víðar um heim. Í þessari einstöku tilraun voru aðeins tekin tólf blóðsýni úr naut­gripum og jafnmörg úr svínum. Í öllum sýnunum fannst örplast. Tekin voru 25 sýni úr mjólkur­vörum, úr mjólkur­fernum í búðum sem og úr mjólkur­geymum á mjólkur­búum. Í átján sýnum fannst örplast.

Örplast greindist svo í sjö af þeim átta sýnum af nauta­kjöti sem voru rannsökuð og í fimm af átta sýnum úr svína­kjöti.

Hvað er örplast?

Örplast er plastögn sem er minni en 5 milli­metrar. Í sumum tilvikum er framleitt sérstakt örplast sem sett er í dekk, snyrti­vörur og áburð. Í öðrum tilvikum verður til örplast þegar stærri hlutir úr plasti brotna niður í smáar agnir, jafnvel örsmáar nanóagnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár