Ótrúlegt vaxtartímabil Apple á enda

Vaxta­tímabil Apple í tekjum stóð fyrir í 51 ársfjórðung í röð. Því lauk í vikunni.

Apple hefur um langt skeið verið eitt allra verð­mætasta fyrirtæki heimsins. Um tíma var virði þess nálægt 700 milljörðum Bandaríkja­dala, snemma árs 2014. Gríðar­legur vöxtur hefur einkennt starfsemi fyrir­tækisins í meira en áratug. Raunar má rekja upphafið af ótrúlegri velgengni fyrir­tækisins í seinni tíð aftur til ársins 2001, þegar Steve Jobs heitinn birtist nokkuð óvænt með nýja vöru, sem hann hafði mikla trú á. „Má ég kynna iPod,“ sagði hann, eftir að hafa rakið vanda­málin sem Apple vildi leysa á tónlistar­markaði. „Enginn markaðsleiðandi, tæknin er til staðar, notenda­viðmótið einfalt,“ sagði Jobs, með sínum sann­færandi en ofur­einfalda hætti. Svo rakti hann með áhrifa­ríkum hætti, hvernig Apple sæi þessa stöðu. 

Sumir segja þetta áhrifamestu tækni­kynningu sögunnar, en eflaust má deila um það endalaust.

Leiðandi fyrirtæki

Frá þessari kynningu hefur Apple verið leiðandi fyrirtæki í heiminum, þegar kemur að fjar­skiptum, hugbúnaði, hönnun, myndavéla­tækni og útgáfu­starfsemi. Þegar iPod-inn kom á markað þá leystust kraftar úr læðingi innan Apple sem erfitt að var að sjá fyrir hvernig myndu leiða til breytinga. Snjallsíma­væðingin, sem samfélags­miðlar hafa ýtt undir með gjör­breyttu samskipta­mynstri fólks, hefur leitt til gríðar­legs fjár­streymis til Apple.

Raunar eru fá fordæmi í sögunni fyrir viðlíka fjárhagslegri stöðu hjá fyrirtæki eins og Apple hefur sýnt á undan­förnum árum. Í lok árs 2014 átti fyrir­tækið um 200 milljarða Bandaríkja­dala í lausu fé. Þegar það gaf út skulda­bréf í fyrra, þá fékk fyrir­tækið neikvæða vexti. Eftir­spurnin var slík, að það gat sótt sér ókeypis peninga þegar það þurfti að taka lán, keypt eigin bréf og endur­skipulagt fjárhags­stöðu sína með hagstæðasta mögulega hætti.

Frá því Steve Jobs, stofnandi og forstjóri Apple, lést úr krabba­meini, 5. október 2011, þá hefur reksturinn verið í föstum skorðum og vöxturinn haldið áfram. Tim Cooke hefur stýrt þessari tækni­skútu í gegnum mikinn tekjuvöxt. En undir­liggjandi hafa samt verið áhyggjur af því hvað myndi taka við, þegar vaxtar­kúrfan hægir á sér eða stöðvast.

Milljarðarmæringur spyr spurninga og selur

Maður er nefndur Carl Icahn. Hann er milljarð­armæringur og þykir með virtustu fjár­festum heimsins þegar kemur að alþjóðlegri tækni. Hann fjár­festir í hluta­bréfum fyrir­tækja, sem eru að veðja á vöxt utan heima­svæðis og þá einkum í Asíu. Icahn hefur á þessu ári verið að selja bréf sín í Apple, fyrir meira en fjóra milljarða Bandaríkja­dala.

Í síðustu viku dró til tíðinda, þegar hann tjáði sig við fjölmiðla og sagði áhyggjurnar einkum vera af Kína.„Ég hef áhyggjur af Kína og hvernig Apple mun reiða af þar,“ sagði Icahn í viðtali við Bloomberg. Markaðs­virði Apple hefur lækkað jafnt og þétt að undan­förnu, en segja má að það hafi hrunið niður á undan­förnum dögum. Á innan við einum degi lækkað það um sjö prósent, síðastliðinn miðvikudag, og er markaðs­virði þess nú um 520 milljarða Bandaríkja­dala. Lækkunin á markaðs­virði frá það fór hæst árið 2014, nemur um 180 milljörðum Bandaríkja­dala, sem er upphæð sem er margfalt hærri en virði Tesla, Amazon, Facebook, Twitter og Space X, samanlagt.

Sett í íslenskan veruleika þá nemur verðfalls­upphæðin 22 þúsund milljörðum króna, sem er á við tífalda árlega lands­framleiðslu Íslands. 

Stærðirnar þegar Apple er annars vegar eru því miklar, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Hvað gerist næst?

Stór spurningin sem fjár­festar horfa til hér í Banda­ríkjunum, er hvað muni gerast næst. Eins og mál standa nú, þá er ekki talið líklegt að Apple geti myndað mikinn vöxt á næstu misserum. Á fyrstu þremur mánuðum ársins féll sala saman um þrettán prósent, miðað við sama ársfjórðung fyrir ári. Þar með lauk ótrúlegu skeiði, sem taldi 51 ársfjórðung, þar sem fyrir­tækið sýndi vöxt miðað við sama tímbil ári fyrr.

Enginn ætti þó að afskrifa Apple, þrátt fyrir að fyrir­tækið standi um margt á tímamótum þessi misserin. Vörur fyrir­tækisins er ennþá gríðar­lega eftir­sóttar, þrátt fyrir allt. Tekjurnar námu 50,6 milljörðum Bandaríkja­dala á fyrsta ársfjórðungi, en flestar spár höfðu gert ráð fyrir að minnsta kosti 52 milljörðum Bandaríkja­dala. Einkum er það fall á sölu á iPhone símum sem er að valda því, að tekjur vaxa ekki milli ára, og því eru miklar vonir bundnar við að Apple komi fram með eitthvað óvænt og notenda­vænt – eins og Steve Jobs var frægur fyrir – á næstu misserum. Margir hafa horft til innreiðar á bíla­markað og einnig á orku­markað, með umhverfis­vænum tækni­lausnum.

Allt mun þetta skýrast, þegar framtíðin ber að dyrum. Þannig var það oft hjá Jobs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár