Sér ekki högg á vatni á eigin fé bankanna þótt þeir ætli að borga út 32,5 milljarða í arð

Þrátt fyrir að kerfis­lega mikil­vægir bankar greiði út tugi milljarða króna í arð til eigenda sinna mun eigið fé þeirra nánast standa í stað. Fjármála­stöðugleika­nefnd telur bankana hafa gott svigrúm til að mæta hækkun sveiflu­jöfnunar­aukans.

Eiginfjár­hlutfall kerfis­lega mikilvægu bankanna þriggja: Lands­bankans, Íslands­banka og Arion banka var 24,8 prósent í lok september síðastliðins. Það hafði lækkað um 0,1 prósentu­stig frá síðustu áramótum þegar búið er að draga frá þá þann hluta hagnaðar fyrstu níu mánuði ársins, alls 32,5 milljarða króna, sem bankarnir ætla að greiða í arð til eigenda sinna á árinu 2022

Þetta kemur fram í minnis­blaði sem Seðla­banki Íslands sendi fjármála­stöðugleika­nefnd 3. desember síðastliðinn og hefur verið birt á vef bankans.

Þar segir að eiginfjár­hlutföllin séu sex til sjö prósentu­stigum fyrir ofan þá lágmarks eigin­fjárkröfu sem Seðla­bankinn gerir. Bankarnir hafi því gott svigrúm til að mæta hækkun sveiflu­jöfnunar­aukans í tvö prósent í september árið 2022.

Sveiflujöfnunarauki endurvakinn

Sveiflu­­jöfn­un­­ar­­auki Seðla­­bank­ans eru við­­bót­­ar­­kröfur á eigið fé fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja umfram lög­­bundnar eig­in­fjár­­­kröfur til að sporna gegn miklum sveiflum í fjár­­­mála­­kerf­inu. Ef mikil hætta er á þenslu getur Seðla­­bank­inn hækkað auk­ann til að koma í veg fyrir of mik­inn útlána­vöxt, en ef hætta er á sam­drætti getur bank­inn lækkað auk­ann til að efla útlána­­getu fjár­­­mála­­fyr­ir­tækj­anna.

Þegar sveiflu­jöfn­un­ar­auk­inn var afnumin í mars í fyrra var það gert til að auka þrótt efna­hags­lífs­ins til að takast á við afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins ­með því að skapa svig­­rúm til nýrra útlána sem átti að nema allt að 350 millj­­örðum króna. Þorri þessa svig­rúms hefur verið nýtt í að lána til hús­næð­is­kaupa.

Fjármála­stöðugleika­nefnd ákvað í september síðastliðnum að end­ur­vekja sveiflu­jöfn­un­ar­aukann til að auka þrótt kerfis­lega mik­il­vægu bank­anna þriggja til að lána heim­ilum og fyr­ir­tækj­u­m.

Nefndin taldi ekki lengur þörf á því viðbótar­svigrúmi. Í yfir­lýsingu nefndarinnar frá þeim tíma sagði að það væri mat hennar að hratt hækk­andi eigna­verð sam­hliða auk­inni skuld­setn­ingu heim­ila, hefði nú þegar fært sveiflu­tengda kerf­is­á­hættu að minnsta kosti á sama stig og hún var fyrir útbreiðslu kórónu­veiru­faraldursins. „Nefndin hefur því ákveðið í ljósi auk­innar upp­söfn­unar sveiflu­tengdrar kerf­is­á­hættu að hækka sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki úr 0 pró­sent í 2 pró­sent. Ákvörðun nefnd­ar­innar tekur gildi að 12 mán­uðum liðnum í sam­ræmi við þær reglur sem um sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann gilda. Sveiflu­jöfn­un­ar­auk­inn sann­aði gildi sitt í far­aldr­inum og hefur nefndin tekið til skoð­unar hvert hlut­laust gildi sveiflu­jöfn­un­ar­aukans eigi að vera til fram­tíð­ar.“

Einn banki ætlar að skila allt að 88 milljörðum til hluthafa

Sá kerfis­lega mikilvægu bankanna sem hefur leitt útgreiðslur til hluthafa sinna á því tímabili sem liðið er frá því að kórónu­veiru­faraldurinn skall á er Arion banki. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 greiddi Arion banki 25,5 millj­arða króna til hlut­hafa sinna í formi arðs upp á 2,9 millj­arða króna með end­ur­kaupum á eigin bréfum þeirra upp á 22,7 millj­arða króna.

Bank­inn hefur þegar til­kynnt að hann ætli að kaupa eigin bréf af hlut­höfum fyrir tíu millj­arða króna á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins og greiða þeim 11,3 millj­arða króna í arð. Það þýðir að frá byrjun árs og með þeim arð- og end­ur­kaupa­greiðslum sem hann hefur þegar ákveðið mun Arion banki skila 46,8 millj­örðum króna til hlut­hafa sinna.

Í kynn­ingu á mark­aðs­degi Arion banka, sem fór fram í nóvember, kom fram að von sé á meiru. Miðað við mark­mið Arion banka um hvert eig­in­fjár­hlut­fall hans ætti að vera telja stjórn­endur bank­ans hægt að losa um 30,1 millj­arð króna til við­bótar til hlut­hafa án þess að fara niður fyrir þau mörk. Ef salan á greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Valitor til ísra­elska fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, sem ákveðin var í sum­ar, verður sam­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu eiga að losna á bil­inu átta til ell­efu millj­arðar króna til við­bótar sem hægt yrði að greiða út til hlut­hafa.

Því er ljóst að ef áform Arion banka um arð­greiðslur og end­ur­kaup frá byrjun síð­asta árs og þangað til að hlut­fall eiginfjár­þáttar 1 hjá bank­anum er komið niður í 17 pró­sent ganga eft­ir, og Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ilar söl­una á Valitor, munu hlut­hafar hans fá um 84,9 til 87,9 millj­arða króna út úr honum frá byrjun árs 2020 og þar til þessu útgreiðslu­ferli er lok­ið.

Til sam­an­burðar má nefna að heild­ar­hagn­aður Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 var 60,1 millj­arðar króna. Það var meiri hagn­aður en þessir þrír kerfis­lega mik­il­vægu bankar hafa hagn­ast um innan árs síðan 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár