Líkir aðgerðum Seðlabankans við það að „fara á skriðdreka til rjúpnaveiða“

Stefán Ólafsson gagnrýnir vaxta­hækkun Seðla­bankans og segir aðgerðir hans á húsnæðis­markaði bæði ómark­vissar, óskyn­sam­legar og órétt­látar. Hann segir vaxta­hækkanir á alla skuldara til að hemja markaðinn vera eins og að fara á skrið­dreka til rjúpna­veiða.

Stefán Ólafsson er sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum hjá Eflingu.
Stefán Ólafsson er sér­fræð­ingur í vinnu­mark­aðs- og lífs­kjara­rann­sóknum hjá Eflingu. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stefán Ólafsson, sérfræðingur í vinnu­markaðs- og lífskjara­rannsóknum hjá Eflingu, segir að vaxta­hækkun Seðla­bankans á alla með vaxta­berandi skuldir sé einstak­lega ómarkviss aðgerð, ef markmiðið sé að fækka kaupendum íbúða og létta þar með þrýstingi af verð­hækkunum á húsnæðis­markaði.

„Það er ómark­visst vegna þess að einungis lítill hluti íbúðar­eigenda á hverjum tíma er að fara í íbúða­skipti. Vaxta­hækkun á þá er einungis aukin greiðslu­byrði eða kjara­skerðing, sem hefur engin áhrif á húsnæðis­markaðinn. Þetta er svolítið eins og að fara á skrið­dreka til rjúpna­veiða. Heilu svæðin eru sprengd upp til að ná til nokkurra rjúpna!“ skrifar Stefán í færslu á Facebook í dag.

Hann segir aðgerðir Seðla­bankans auk þess engin áhrif hafa á innflutta verðbólgu, sem sé ásamt misheppnaðri hagstjórn húsnæðis­mála innanlands helsti verðbólguvaldurinn á Íslandi. Aðgerðirnar telur hann að komi frekar til með að auka á vandann sem fylgir innfluttri verðbólgu, með aukinni greiðslu­byrði heimila og fyrir­tækja.

Segir að við munum sjá sprengingu í leiguverði

Einnig segir Stefán þá leið sem Seðla­bankinn hefur valið vera óréttláta, því hún bitni „fyrst og fremst á ungu og tekjulágu fólki“ sem sé sérstak­lega háð skuld­setningu til að geta keypt sér íbúð, en í þessu samhengi er hann einnig að ræða um þær aðgerðir sem kynntar voru af fjármála­stöðugleika­nefnd í síðustu viku, um aukin skilyrði greiðslu­mats og lægri hámarks­skuld­setningu fyrstu kaupenda.

„En fólk með mikla kaupgetu finnur ekki mikið fyrir þessum aðgerðum og mun ekki láta þær stoppa sig í að skipta um íbúðar­húsnæði, sem er sennilega það sem hefur mest áhrif til að þrýsta verði upp,“ skrifar Stefán.

Hann segir að með því „loka ungu og tekjulágu fólki leið inn á íbúða­markaðinn“ sé þessum hópi „þrýst út á leigu­markaðinn, þar sem greiðslu­byrðin er meiri en af kaupum á hóflegri íbúð“ og fullyrðir að í fram­haldinu munum við sjá „sprengingu í leigu­verði“.

„Seðla­bankastjóri nefnir þetta reyndar í nýlegu viðtali og viðurkennir takmörkuð áhrif vaxta­hækkunarinnar og hinna sérstöku úrræða - um leið og hann fullyrðir digurbarka­lega að tæki Seðla­bankans virki og að þeim verði beitt af enn meiri hörku ef verð­bólgan eykst enn meira.

Þannig að ef afleiðingar innrásarinnar í Úkraínu verða enn meiri fyrir heims­hagkerfið en orðið er þá mun Seðla­banki Íslands bæta við þær þrengingar með enn meiri skulda­byrði heimila og fyrir­tækja á Íslandi!“ skrifar Stefán, sem segir þetta í senn ómark­visst, óskynsamlegt og óréttlátt.

„Væri ekki nærtækara að hamla kaupum fjárfesta á mörgum íbúðum til að leigja út og braska með? Ætti ekki frekar að hægja á íbúða­skiptum tekju­hærri hópa? Takmarka fé í umferð?

Auðvitað þarf aukið framboð íbúða til að leysa vandann endanlega, en það tekur tíma. Fleira mætti þó gera á framboðs­hlið húsnæðis­málanna til að flýta fyrir auknum byggingum. Ástandið á sennilega eftir að versna enn frekar áður en það batnar,“ skrifar Stefán Ólafsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár