Verndar íslenskan menningararf með því að gera við fornbækur

Forn­bóka­safnarinn Eyþór Guðmundsson segir mikilvægt að vernda þann menningararf sem liggur í íslenskum fornbókum. Það gerir hann með verk­efninu Old Icelandic Books sem gengur út á að vekja áhuga hjá Íslendingum og ferða­mönnum á bókunum og mikilvægi þeirra. Meðal þeirra bóka og handrita sem Eyþór hefur undir höndum eru Grettis saga, Jónsbók og tvö hundruð ára tilskipun til Alþingis frá fyrrum Dana­konungi.

Eyþór Guðmundsson
Eyþór Guð­munds­son Er upp­hafs­maður verk­efn­is­ins Old Icelandic Books. Það er Eyþóri hjart­ans mál að vernda íslenskan menn­ing­ar­arf með því að gera við bæk­urnar, kynna þær fyrir áhuga­sömum og sjá til þess að þær glat­ist ekki. Mynd: Golli

Eyþór Guðmundsson er forn­bókasafnari í miðbæ Reykja­víkur og maðurinn á bakvið samfélags­verkefnið Old Icelandic Books. Það er Eyþóri hjartans mál að varðveita þann menningararf sem liggur í fornbókum. 

Þetta er hugleiðsla

Eyþór ólst upp í sveit á Beiti­stöðum og segir æsku­heimilið hafa verið troðfullt af bókum. Hann man eftir sér fimm eða sex ára gömlum hlusta á föður sinn lesa Grettis sögu og Egils sögu.

Rúmum tvö hundruð árum áður en Eyþór bjó í sveitinni hafði verið þar prentsmiðja. „Það var alltaf einhver smá dulúð yfir bókunum og yfir prentsmiðjunum. Þannig að ég var mjög ungur þegar ég fékk áhuga á lestri, sögum og bókum yfir höfuð,“ segir Eyþór.

Hann byrjaði að safna fornbókum markvisst árið 2018 og hefur nú yfir 550 bækur í sinni vörslu. „Ég safna fyrst og fremst þessum gömlu bókum frá gömlu íslensku prentsmiðjunum. Það eru bækur frá prentsmiðjunum í Viðey, Leir­árgörðum …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár