Segir nýja lotu í hinum alþjóðlega peningaleik hafna

Innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögðin við henni hafa breytt alþjóð­lega fjármála­kerfinu, segir doktor í fjármálum. Hann segir helstu vonina í fjármála­stríðinu á milli austurs og vesturs liggja í þéttu samstarfi Evrópu­landa.

Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum.
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjár­málum. Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Engin söguleg fordæmi eru fyrir efnahags­aðgerðum sem settar hafa verið á Rússland vegna innrásarinnar í Úkraínu. Aðgerðirnar eru ný tegund af efnahags­legum hernaði og hafa leitt til mikilla breytinga í alþjóð­lega fjármála­kerfinu. Þetta skrifar Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Samkvæmt Ásgeiri Brynjari eru aðgerðirnar einstakar vegna hraða þeirra og samtaka­máttar ríkjanna sem beita þeim. Þessi viðbrögð, til viðbótar við sjálf­viljugar aðgerðir alþjóðlegra fyrir­tækja sem hafa flúið Rússland með hverjum deginum sem líður, eru að hans mati heims­sögulegur viðburður.

Hann bætir við að aðgerðirnar, sem heims­byggðin hefur ráðist í til að reyna að kremja Rússland efnahags­lega, séu líkar stríðs­aðgerðum að því leytinu til að þær bitna á saklausum almenningi í landinu. Einnig verði almenningur um allan heim fyrir barðinu á afleiðingum aðgerð­anna, þar sem verð á ýmsum hrávörum hefur hækkað töluvert vegna þeirra.

Vegna þessara afleiðinga segir Ásgeir að nauðsynlegt verði að styðja við bæði úkraínskan og rússneskan efnahag að stríðinu loknu, fari svo að Rússland verði lýðræðis­ríki og hætti við innrásina, en samkvæmt honum mun þurfa ígildi Marshall-aðstoðarinnar til að endur­reisa hagkerfi beggja ríkjanna.

Önnur fórnar­lömb efnahags­aðgerðanna eru rússneskir ólígarkar, sem urðu ríkir með því að sölsa undir sig auðlindir rússnesku þjóðarinnar eftir fall Sovét­ríkjanna. Að mati Ásgeirs áttu Vestur­lönd sinn þátt í auðgun þeirra með því að hvetja Rússland til að forgangs­raða markaðs­umbætur umfram stjórnarfarslegar umbætur á sínum tíma.

Ásgeir segir nýja lotu í hinum alþjóð­lega peninga­leik vera hafna með frystingu á eignum ólígarkanna um allan heim, sem áhugavert sé að fylgjast með. Mögulega verði spilin stokkuð upp á nýtt, þótt það sé einnig yfir­vofandi hætta á að þeir sem svindli mest græði áfram mest. Samkvæmt honum liggur helsta vonin í fjármála­stríðinu í þéttu samstarfi Evrópu­ríkja, sem sé drifið áfram af viljanum til að stöðva stríð.

Hægt er að lesa grein Ásgeirs Brynjars í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár