Seðlabankinn neitar að afhenda úrskurð um niðurfellingu á kæru Samherja gegn starfsmönnum bankans

Seðla­banki Íslands vill ekki afhenda úrskurð um niður­fellingu kærumáls Samherja gegn fimm starfs­mönnum bankans. Bankinn vísar til þess að málið varði einka­hagsmuni starfs­manna bankans. Embætti ríkis­saksóknara skilaði löngum úrskurði með rökstuðningi fyrir stað­festingu niður­fellingar málsins.

Úrskurðurinn fer leynt
Úrskurð­ur­inn fer leynt Leynd er yfir úrskurð­inum um nið­ur­fell­ingu máls Samherja gegn fimm starfs­mönnum Seðla­banka Íslands.Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri og Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja.

Seðla­banki Íslands neitar að afhenda Stundinni úrskurð um niður­fellingu á kærumálum Samherja gegn fimm núverandi og fyrr­verandi starfs­mönnum bankans. Þetta kemur fram í svari frá Seðla­banka Íslands við fyrir­spurn fjöl­miðilsins um úrskurðinn.

Vorið 2019 kærði Samherji starfs­mennina fimm fyrir meint brot í starfi í rannsókn bankans á meintum brotum útgerðarinnar á lögum um gjaldeyrismál. Embætti lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu felldi niður rannsókn málsins og staðfesti ríkis­saksóknari þá niður­stöðu í sumar. Embætti héraðs­saksóknara sendi úrskurðinn í kjölfarið til Seðla­banka Íslands og til forsætis­ráðuneytisins og hefur fyrr­nefnda stofnunin nú neitað að afhenda hann. 

Eins og Stundin greindi frá fyrir skömmu lá kæran hjá embætti lögreglu­stjórans á Vestfjörðum í tvö ár á meðan hún var í skoðun. Eiginleg sakamála­rannsókn hófst aldrei og tímafrek gagna­öflun tafði málið, segir lögreglu­stjórinn Karl Ingi Vilbergsson. Starfs­mennirnir sem voru kærðir voru þau Már Guðmundsson, Arnór Sighvatsson, Ingibjörg Guðbjarts­dóttir, Sigríður Loga­dóttir og Rannveig Júníusdóttir. Þau fengu úrskurðinn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár