„Tilraunabörnin“ krefja ríkið um bætur

Árið 1951 voru 22 grænlensk börn tekin frá fjöl­skyldum sínum í tilraun sem hafði það að markmiði að gera þau „dönsk“. Sex þeirra krefja nú danska ríkið um bætur fyrir meðferðina.

Börnin voru tekin frá foreldrum sínum og áttu að verða ný tegund Grænlendinga.
Börnin voru tekin frá for­eldrum sínum og áttu að verða ný teg­und Græn­lend­inga. Mynd: Skjáskot af BBC

„Ég hélt að ég væri að fara í frí,“ segir Kristine Heinesen um það þegar hún var fimm ára og var flutt um borð í stórt skip. Þetta var árið 1951. Litla veröldin sem hún hafði alist upp í á Grænlandi var að stækka – ævintýri á næsta leyti og svo færi hún aftur heim. Eða það hélt hún. En eftir því sem hún fór lengra frá heima­högunum gerði hún sér grein fyrir því að hún myndi ekki snúa aftur í faðm fjöl­skyldunnar.

Heinesen er í hópi sex Grænlendinga á áttræðis­aldri sem krefja danska ríkið um bætur vegna þeirrar meðferðar sem þau þurftu að þola í æsku. Samtals voru 22 grænlensk börn tekin frá fjöl­skyldum sínum í tilraun sem hafði það að markmiði að gera þau „dönsk“. Frumbyggjar annarra landa, fólk sem bjó þar áður en Evrópu­búar komu sér þar fyrir og gerðu að nýlendum sínum, hafa sagt svipaðar sögur. Skemmst er að minnast uppljóstrana um meðferð barna frum­byggja í heimavistar­skólum í Kanada. Mörg þeirra sneru aldrei aftur til síns heima eftir þá ömurlegu vist.

Grænlensku börnin 22 voru á aldrinum 4-9 ára er þau voru tekin og send til Danmerkur þar sem átti að kenna þeim dönsku og gera þau að nokkurs konar „grænlenskri elítu“ eins og því er lýst í frétta­skýringu danska ríkis­sjón­varpsins um málið. Þegar þau færu aftur til Grænlands áttu þau að leiða áætlanir hinna dönsku nýlendu­herra til að nútíma­væða landið. Úr þeim átti að gera „nýja tegund af Grænlendingum“ – fyrir­myndir annarra landa þeirra. Þetta var hluti af tilraun – tilraun sem mistókst hrapalega er óhætt að fullyrða.

Kennarar og prestar voru fengnir til að velja börn sem svo átti að „endur­mennta“ og veita „betra líf“ í Danmörku. Fjöl­skyldur barnanna voru hikandi að senda börnin sín frá sér en í maí 1951 fóru 22 börn um borð í skipið MS Disko í Nuuk og til Danmerkur.

Eftir að börnin höfðu dvalið þar í 1-2 ár voru þau vissulega send aftur til Grænlands. En ekki til fjöl­skyldna sinna heldur á munaðar­leysinga­hæli þar sem þeim var bannað að tala sitt móðurmál – máttu aðeins tala dönsku. Þeim var svo komið fyrir hjá fóstur­foreldrum.

Mette Frederiksen, danski forsætis­ráðherrann, baðst í fyrra fyrir hönd lands síns afsökunar á framferðinu. „Við getum ekki breytt því sem gerðist en við getum tekið ábyrgð á því og beðið þá sem við áttum að gæta en brugðumst afsökunar,“ sagði hún við það tækifæri.

Rænd fjölskyldum sínum

Aðeins sex „tilrauna­börn“ eru enn á lífi og sendi lögmaður þeirra skaða­bótakröfu á hendur danska ríkinu til skrif­stofu forsætis­ráðherra í dag. Fallist ríkið ekki á kröfuna verður látið á hana reyna fyrir dómstólum. „Alla þeirra barnæsku voru þau rænd fjöl­skyldu sinni og því að fá að vera þau sjálf,“ segir lögmaðurinn Mads Pramming. Ekkert tillit hafi verið tekið til hvað væri börnunum fyrir bestu.

„Það er enn erfitt að tala um þetta,“ hefur danska ríkis­sjónvarpið eftir Heinesen. Þótt sjö áratugir séu liðnir frá því að hún var tekin frá fjöl­skyldu sinni hafa sárin ekki gróið. Hún komst ekki að því að hún hafi verið eitt þessara „tilrauna­barna“ fyrr en árið 1996. Þá fyrst hafi hún getað komist aftur í samband við ættingja sína.

Hún segir afsökunar­beiðni forsætis­ráðherrans hafa skipt sig miklu. „Þetta snerti mig því við höfðum barist svo lengi fyrir að vera beðin afsökunar. Að þeir myndu viðurkenna að ríkið hefði gert risastór mistök.“

Gabriel Schmidt er einn sexmenninganna. Hann segir afsökunar­beiðnina ekki vera nóg. Ekki vera nóg til að bæta fyrir tapaða barnæsku. Fái hann skaða­bætur ætlar hann að nota þær til að bjóða allri fjöl­skyldunni til Grænlands.

Bæði Schmidt og Heinesen voru send aftur til Grænlands eftir veruna í Danmörku en það tók þau áratugi að komast aftur í samband við fjöl­skyldur sínar. Heinesen lærði einhverja grænlensku á ný en Schmidt segist alveg hafa tapað móður­málinu.

Pramming segir ekki nóg að biðjast afsökunar á framferði stjórn­valda líkt og gefið er í skyn í tilkynningu skrif­stofu forsætis­ráðherra við kröfu „tilrauna­barnanna“. Það þurfi einnig að viðurkenna að lög og réttindi barnanna hafi verið brotin. „Og það verður gert með greiðslu skaðabóta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár