Há - Spenna - Límgildra

Bragi Páll Sigurðarson heimsótti spilasali miðborg­ar­innar og ræddi við viðstadda.

Bragi Páll og spilakassarnir
Bragi Páll og spila­kass­arnir „Sjáðu hvernig þeir blikka og syngja og bing bing bing!“ segir einn gestur við Braga Pál. „Svona eru þeir þó það sé eng­inn í þeim.“ Mynd: Heida Helgadottir

Þegar ég var í mennta­skóla, upp úr aldamótum, var sjoppa við hliðina á skólanum. Hallinn. Þar var vinsælt að lúðra í sig einni „peppó,“ sem var pepperóní-langloka hituð í örbylgju­ofni. Fólk talaði um þessa pepperóní­loku eins og hún væri mesta gúrmé-máltíð sem fólk komst í. 

Í þessari ágætu sjoppu, sem lokaði fyrir mörgum árum, var spila­kassi. Ekki svona fínn og blikkandi og tengdur við internetið eins og kassarnir í dag. Þessi var, í minningunni athugið, grár og lítill og mjög matvandur á þá seðla og klink sem fólk reyndi að troða í hann.

Eins og er oft með unglinga í mennta­skóla var okkar helsta áhugamál að sjúga bjór­flöskustút þar til veröldin snérist í hringi og vonandi skilaði vörum okkar á aðrar varir sem voru tilbúnar í smá sleik. Það varð hefð hjá mér og nokkrum félögum mínum að fara á föstu­dögum í Hallann, kaupa eina undir meðallagi-góða langloku, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár