Segir lokaðan fund hafa verið óviðeigandi

Þing­maður Pírata gagn­rýnir lok­aðan fund sem rekstr­ar­að­ilar ferða­þjón­ustu á hálend­inu buðu þing­mönnum á í gær. Hann segir að almennt séð hafi það áhrif á fólk að þiggja veit­ingar eða aðrar „smá“ gjafir.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, telur það vera óvið­eig­andi fyrir svo­kall­aða „lobbí­ista“ – eða full­trúa hags­muna­hópa – að halda lok­aða fundi fyrir þing­menn. Þetta segir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

„Ég mætti á fund í gær á Skólabrú þar sem rekstr­ar­að­ilar ferða­þjón­ustu á hálend­inu buðu þing­mönnum á fund til þess að fjalla um stofnun hálend­is­þjóð­garðs. Í boði voru ein­hverjar fínar snittur og sam­tal við ein­hverja 20 rekstr­ar­að­ila,“ skrifar hann.

Hann greinir frá því að fyrst hafi hann spurt hvort fólk átt­aði sig á því hversu óvið­eig­andi lok­aður fundur sem þessi væri. Þarna væri verið að fjalla um mál sem ættu að vera í formi opin­berra umsagna frá þessum aðilum sem hægt væri að ræða í opin­berri sam­fé­lags­um­ræðu. „Það er vægt til orða tekið að fólk tók ekki vel í þá spurn­ingu og einn þing­maður meira að segja afsak­aði fyrir fram­komu mína. Það var mjög aug­ljóst að nákvæm­lega eng­inn þarna inni skildi hvernig sam­skipti kjör­inna full­trúa og lobbí­ista eiga að vera,“ skrifar hann.

Hefur áhrif að þiggja „smá“ gjafir

Björn Leví áréttar þó að það sé í góðu lagi fyrir fólk að hitt­ast en það eigi að greina frá slíku. Fundir sem þessir hafi áhrif á aðkomu kjör­inna full­trúa að mál­efnum. „Nú hafa lobbí­istar hitt mig á lok­uðum fundi og sagt mér eitt­hvað sem eng­inn annar getur skoðað.“

Þetta þýði að allur hans mál­flutn­ingur í því máli verði að skoð­ast í því ljósi. Það eigi ekki að gera lítið úr svona vinnu­brögðum, það hafi almennt séð áhrif á fólk að þiggja veit­ingar eða aðrar „smá“ gjafir. Það búi til vel­vild og hafi áhrif, almennt séð.

„Ég þáði engar veit­ingar á þessum atburði nema vatn og leið satt best að segja illa á þessum fundi vegna þess­ara mála. Ég var að gera mig van­hæf­ari til þess að fjalla um mál­efni hálend­is­þjóð­garðs með því að vera á þessum fundi í ásýnd ein­hvers hluta sam­fé­lags­ins,“ skrifar Björn Leví.

Skipir máli að fólk viti hver eigi þingmanninn sem það kýs

Þing­mað­ur­inn seg­ist hafa hvatt rekstr­ar­að­il­ana til þess að senda allt sem þau höfðu að segja sem umsögn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og til þings­ins þegar málið kemur þangað. „Ég bað þau um að skafa ekk­ert utan af hlut­unum og tala ekki undir rós því þau höfðu vissu­lega ýmsar ábend­ingar sem er ekk­ert óeðli­legt að stjórn­völd svari varð­andi þetta mál. Hvað nákvæm­lega það er, þá ein­beitti ég mér að því að muna það ekki því þær spurn­ingar eiga að koma í opin­berri umsögn.“

Hann end­ur­tekur að ekk­ert sé „að“ því að þing­menn hitti og tali við fólk. Það geti hins vegar varðað sam­skipti við lobbí­ista sem eigi að vera skráð og upp­lýst því – eins og hafi komið fram á fund­inum – ferða­þjón­ustan hafi aldrei „átt“ þing­mann. Að hans mati skiptir það máli að fólk viti hver eigi þing­mann­inn sem það er að kjósa.

Að lokum bendir hann á að verið sé að vinna frum­varp um lobbí­ista og að hann hlakki gríð­ar­lega til þess að þingið fái það til umfjöll­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár