Tekjuöflun ríkisins verða áfram settar skorður með stefnumiði sem Seðlabankinn telur „sérlega bagalegt“

Umdeilt stefnumið um að tekjur hins opin­bera auk­ist ekki umfram vöxt vergrar lands­fram­leiðslu verður áfram við lýði þrátt fyrir við­var­anir Seðla­bank­ans og rík­is­stjórn­ar­skipti. „Stefnu­miðið virð­ist því fyr­ir­fram setja skorður við sjálf­virka sveiflu­jöfnun á tekju­hlið opin­berra fjár­mála og fela í sér að ef hag­vöxtur reyn­ist kröft­ugri skuli gefa eftir tekjur.“

Fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur að geyma sama stefnumið um sér­stakar skorður við tekju­öflun rík­is­ins og kveðið var á um í fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar sem kynnt var í fyrra. Í báðum áætl­unum er því slegið föstu að frum­tekjur rík­is­ins, það er skatt­tekjur og annað en vaxta­tekjur og óreglu­legir liðir, skuli ekki aukast umfram vöxt vergrar lands­fram­leiðslu næstu fimm árin. Seðla­bank­inn telur slíkt fyr­ir­komu­lag „sér­lega baga­legt“ og til þess fallið að magna hag­sveifl­una.

Í umsögn sem Seðla­bank­inn birti um fjár­mála­á­ætlun fyrri rík­is­stjórnar er stefnu­miðið um tekjur sér­stak­lega gagn­rýnt. „Það fyrsta sem vekur athygli við fjár­mála­á­ætl­un­ina eru stefnumið áætl­un­ar­innar fyrir rík­is­sjóð. Til­greint er að frum­tekjur skuli ekki aukast umfram vöxt VLF frá árinu 2017 til árs­ins 2021,“ segir í umsögn­inni. Bent er á að almennt sé jákvætt sam­band milli fram­leiðslu­spennu og hlut­falls svo­kall­aðra frum­tekna af vergri lands­fram­leiðslu. Ef hag­vöxtur verði meiri en gert er ráð fyrir í áætl­un­inni muni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálaáætlun 2018-2022

Fréttir

Stjórn­ar­liðar lögð­ust gegn til­lögum um aukin fram­lög til heil­brigðis- og mennta­mála

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var sam­þykkt með 32 atkvæðum gegn 31 í nótt. Þings­á­lykt­unin gengur í ýmsum grund­vall­ar­at­riðum í ber­högg við grunn­gildi laga um opin­ber fjár­mál og hefur sætt harðri gagn­rýni, meðal ann­ars frá stjórn­endum spít­ala og mennta­stofn­ana. Engar breyt­ingar voru gerðar á mál­inu við með­ferð þess á þingi þrátt fyrir að hátt í 200 umsagnir hafi borist.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár