„Það eru nákvæmlega svona mál sem halda aftur af Íslandi“

Þing­maður Pírata gagn­rýnir ákvarð­anir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. „Svona mál leiða til lélegri nið­ur­staðna í öllu sem ger­ist í fram­hald­inu af því að hæf­asta fólkið er ekki að taka ákvarð­an­irnar.“

Lilja D. Alfreðsdóttir og Björn Leví Gunnarsson
Lilja D. Alfreðs­dóttir og Björn Leví Gunn­ars­son Mynd: Samsett mynd

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir það vera grafal­var­legt mál að Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafi farið gegn til­lögu sér­fræð­inga í mennta­mála­ráðu­neyt­inu þegar hún skip­aði Einar Huga Bjarna­son sem for­mann fjöl­miðla­nefndar í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Þing­mað­ur­inn gerði málið að umtals­efni í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær.

„Það eru nákvæm­lega svona mál sem halda aftur af Íslandi. Svona mál leiða til lélegri nið­ur­staðna í öllu sem ger­ist í fram­hald­inu af því að hæf­asta fólkið er ekki að taka ákvarð­ar­irnar. Afleið­ingin er lélegra Ísland,“ skrif­aði hann.

Vísar Björn Leví í frétt RÚV þar sem fram kemur að sam­kvæmt minn­is­blaði til Lilju hafi verið mælt með því að skipa sem for­mann, konu sem er einn helsti sér­fræð­ingur í fjöl­miðla­rétti í land­inu. Lilja hafi þess í stað valið karl sem hefur litla sem enga reynslu á svið­inu en hefur setið í minnst átta nefndum á vegum Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Einar Hugi Bjarna­son var for­maður hæfn­is­nefndar um mat á umsækj­endum um emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins en Lilja braut jafn­rétt­islög með því að skipa flokks­bróður sinn, Pál Magn­ús­son, í emb­ættið. Umboðs­maður Alþingis hefur nú skip­an­ina til athug­unar, sam­kvæmt RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár