Lilja braut jafnréttislög þegar hún skipaði Pál í embætti ráðuneytisstjóra

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra braut jafn­rétt­islög við skipun Páls Magn­ús­sonar í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Verulega skorti á efn­is­legan rök­stuðn­ing ráð­herra fyrir ráðn­ing­unni, segir í úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra braut jafn­rétt­islög við skipun Páls Magn­ús­sonar í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í fyrra, sam­kvæmt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Mennta­mála­ráð­herra van­mat Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, annan umsækj­enda, í sama­burði við Pál, að því er fram kemur í hádeg­is­fréttum RÚV í dag.

Kjarninn greindi frá því þann 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Lilja hefði skipað Pál í emb­ættið til fimm ára frá og með 1. des­em­ber.

Páll hefur um ára­bil gegn trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn en hann var vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í tvö kjör­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­ar­maður Val­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Páll var sagður í til­kynn­ingu mennta- og mennning­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins þegar greint var frá ráðn­ing­unni hafa fjöl­þætta menntun og reynslu af stjórn­un­ar­störfum hjá hinu opin­ber­a.

[links]Páll lauk meist­ara­gráðu í lög­fræði frá Háskól­an­um í Reykja­vík og meist­ara­prófi í opin­berri stjórn­sýslu frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með BA-gráðu í guð­fræði frá sama skóla. Frá árinu 2006 hefur hann starfað sem sviðs­stjóri stjórn­sýslu­sviðs og bæj­ar­rit­ari hjá Kópa­vogs­bæ, stýrt umbótum á stjórn­sýslu bæj­ar­ins og m.a. haft for­göngu um inn­leið­ingu gæða­kerf­is.

„Hann starf­aði áður í iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu um sjö ára skeið, sem aðstoð­ar­maður ráð­herra. Páll sat í stjórn Lands­virkj­unar frá árinu 2007 til 2011, þar af sem for­maður frá 2007 til 2008, var vara­for­maður útvarps­ráðs og síðar stjórnar RÚV ohf. frá 2003 til 2008. Hann var stjórn­ar­for­maður Fjár­fest­inga­stofu Íslands frá 1999 til 2006 og á sama tíma­bili vara­maður í stjórn Nor­ræna fjár­fest­inga­bank­ans (NI­B). Á árunum 1990-1998 var hann vara­bæj­ar­full­trúi í Kópa­vogi og vara­þing­maður frá 1999 til 2007. Þrettán sóttu um emb­ættið og mat hæfn­is­nefnd fjóra umsækj­endur mjög hæfa til þess að gegna því. Í kjöl­farið boð­aði ráð­herra þá í við­tal, þar sem ítar­lega var farið ofan í ein­staka þætti starfs­ins og sýn umsækj­enda. Var það mat ráð­herra, að Páll Magn­ús­son væri hæf­astur umsækj­enda til að stýra ráðu­neyt­inu næstu fimm árin og leiða það umbóta­starf sem er í far­vatn­in­u,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

Verulega skorti á efnislegan rökstuðning ráðherra fyrir ráðningunni

Í frétt RÚV kemur fram að Hafdís Helga hafi óskað eftir rök­stuðn­ingi fyrir ráðn­ing­unni í nóv­em­ber og öllum gögnum máls­ins. Hún hafi fengið rök­stuðn­ing­inn en ráðu­neytið neitað að afhenda henni öll gögn með þeirri skýr­ingu að einka­hags­munir ann­arra væru rík­ari en hags­munir Helgu. Helga hafi gert athuga­semd við þá ákvörðun sem hún hafi ítrekað þrí­vegis og fengið loks öll gögn afhent í jan­úar. Hún hafi kært ráðn­ing­una til kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála í mars og úrskurður verið kveð­inn upp þann 27. maí síð­ast­lið­inn.

Í honum segir, sam­kvæmt RÚV, að ýmissa ann­marka hafi gætt af hálfu mennta­mála­ráð­herra við mat á Hafdísi Helgu og Páli. Lilja hafi van­metið Hafdísi sam­an­borið við Pál varð­andi menntun, reynslu af opin­berri stjórn­sýslu, leið­toga­hæfi­leika og hæfni til að tjá sig í riti. Í nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar segir að veru­lega skorti á efn­is­legan rök­stuðn­ing mennta­mála­ráð­herra fyrir ráðn­ing­unni og ljóst sé að Páll hafi ekki staðið Hafdísi Helgu framar við ráðn­ing­una.

Mennta­mála­ráð­herra hafi ekki tek­ist að sýna fram á að aðrar ástæður en kyn­ferði hafi legið til grund­vallar ráðn­ing­unni og því hafi Lilja Dögg brotið gegn jafn­rétt­islögum. Lögmaður Hafdísar Helgu, Áslaug Árna­dóttir, segir í sam­tali við RÚV að Hafdís sé að íhuga næstu skref og hvort hún fari fram á bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár