Lilja skipar Pál Magnússon ráðuneytisstjóra

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur skipa Pál Magn­ús­son, sem gegnt hefur trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn um ára­bil, sem ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Ákveðið hefur verið að skipa Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti. Skipað er í emb­ættið til fimm ára frá og með 1. des­em­ber.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti Lilju Daggar Alfreðs­dóttur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Páll hefur um ára­bil gegn trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Páll er sagður í til­kynn­ingu hafa fjöl­þætta menntun og reynslu af stjórn­un­ar­störfum hjá hinu opin­bera.

Hann lauk meistara­gráðu í lög­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík og meist­ara­prófi í opin­berri stjórn­sýslu frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með BA-gráðu í guð­fræði frá sama skóla. Frá árinu 2006 hefur hann starfað sem sviðs­stjóri stjórn­sýslu­sviðs og bæj­ar­rit­ari hjá Kópa­vogsbæ, stýrt umbótum á stjórn­sýslu bæj­ar­ins og m.a. haft for­göngu um inn­leið­ingu gæða­kerfis.

„Hann starf­aði áður í iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu um sjö ára skeið, sem aðstoð­ar­maður ráð­herra. Páll sat í stjórn Lands­virkj­unar frá árinu 2007 til 2011, þar af sem for­maður frá 2007 til 2008, var vara­for­maður útvarps­ráðs og síðar stjórnar RÚV ohf. frá 2003 til 2008. Hann var stjórn­ar­for­maður Fjár­fest­inga­stofu Íslands frá 1999 til 2006 og á sama tíma­bili vara­maður í stjórn Norræna fjár­fest­inga­bank­ans (NIB). Á árunum 1990-1998 var hann vara­bæj­ar­full­trúi í Kópavogi og vara­þing­maður frá 1999 til 2007. Þrettán sóttu um emb­ættið og mat hæfn­is­nefnd fjóra umsækj­endur mjög hæfa til þess að gegna því. Í kjöl­farið boð­aði ráð­herra þá í við­tal, þar sem ítar­lega var farið ofan í ein­staka þætti starfs­ins og sýn umsækj­enda. Var það mat ráð­herra, að Páll Magn­ús­son væri hæf­astur umsækj­enda til að stýra ráðu­neyt­inu næstu fimm árin og leiða það umbóta­starf sem er í far­vatn­inu,“ segir í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár