Eze Okafor, nígerískur hælisleitandi sem var vísað úr landi í gær, svaf á götunni í Stokkhólmi síðastliðna nótt. Sænsk útlendingayfirvöld hafa gert honum ljóst að hælisumsókn hans verði ekki enduropnuð þar í landi þar sem meira en fjögur ár eru liðin síðan málið var til meðferðar þar í landi. Öll rök íslenskra yfirvalda byggja á því að Svíþjóð taki við honum og þar fái hann réttláta málsmeðferð. Eze segir að lögreglumennirnir sem fylgdu honum til Svíþjóðar hafi beitt hann harðræði en á myndum neðar í þessari frétt má sjá áverka á höndum hans.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir