Reitir selja uppbyggingarheimildir á Orkureit á hátt í fjóra milljarða

Félagið Íslenskar fasteignir ehf. mun taka við uppbygg­ing­unni á hinum svokallaða Orkureit á milli Ármúla og Suður­lands­brautar af Reitum. Áætlaður sölu­hagnaður Reita af verk­efninu er um 1,3 milljarðar króna.

Ásýnd fyrirhugaðrar uppbyggingar á Orkureitnum séð frá Suðurlandsbraut.
Ásýnd fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar á Orku­reitnum séð frá Suð­ur­lands­braut. Mynd: Úr deiliskipulagstillögu

Fasteigna­félagið Reitir hefur náð samkomu­lagi við félagið Íslenskar fasteignir ehf. um að síðarnefnda félagið kaupi hinn svokallaða Orkureit, fasteignina Ármúla 31 og allar nýbyggingar­heimildir á lóðinni í tengslum við nýtt deili­skipulag sem auglýst hefur verið. Kaup­verðið nemur 3,83 milljörðum króna.

Þetta kom fram í tilkynningu Reita til Kaup­hallarinnar síðdegis í gær, en þar var sérstak­lega tekið fram að kaupin nái ekki til fasteignarinnar að Suður­landsbraut 34, gamla Rafmagns­veitu­hússins, sem ráðgert er að muni standa áfram á lóðinni.

„Kaup­verðið er greitt með peningum við undir­ritun kaup­samnings. Samkomu­lagið er gert með fyrirvara um áreiðanleika­könnun á hinu selda og gildis­töku deili­skipulags. Gert er ráð fyrir að undir­ritun kaup­samnings og afhending eigi sér stað á fyrsta ársfjórðungi 2022,“ segir í tilkynningu Reita.

Þar kemur einnig fram að fasteigna­félagið skuld­bindi sig til samstarfs um hönnun, útfærslu og kaupa á um 1.520 fermetrum af atvinnu­húsnæði sem byggt verður á lóðinni.

Söluhagnaður áætlaður um 1.300 milljónir króna

Í tilkynningu Reita kemur fram að salan muni ekki hafa áhrif á rekstrar­afkomu félagsins fyrir yfir­standandi ár, þar sem afhending eignanna muni ekki fara fram fyrr en á næsta ári. Reitir ráðgera að með sölunni muni rekstrar­hagnaður félagsins lækka um 70 milljónir á ársgrundvelli, en sölu­hagnaður vegna viðskiptanna er hins vegar áætlaður um 1,3 milljarðar króna.

Reitir hafa unnið að fasteigna­þróunar­verkefninu á Orku­reitnum undan­farin fimm ár eða svo og hafa forsvars­menn félagsins áður viðrað þá hugmynd að selja verkefnið í heild sinni eða að hluta.

„Það getur vel verið að verk­efnið að hluta til eða öllu leyti verði selt og þeir sem halda á því áfram hafi hærri rödd en við um það hvernig þetta verði nákvæm­lega útfært,“ sagði Guð­jón Auðunsson forstjóri félagsins í samtali við Kjarnann í mars á þessu ári, en þá hafði hann fyrir hönd Reita undir­ritað samkomulag við Reykja­víkurborg um uppbyggingu á reitnum.

Deili­skipulags­tillagan sem auglýst var í sumar gerir ráð fyrir því að allt að 436 íbúðir verði byggðar á reitnum í 3-8 hæða húsum, ásamt um 4-6 þúsund fermetrum af atvinnu­húsnæði. Hámarks­byggingar­magn á lóðinni samkvæmt skipulags­tillögunni nemur rúmlega 44 þúsund fermetrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár