Heimilislausir handan Suðurlandsbrautar virðast ekki ætla að stöðva áform Reita

Samkomulag hefur verið undir­ritað um uppbyggingu 440 íbúða á Orku­reitnum. Reitir sögðust í fyrra áskilja sér rétt til þess að hætta við áformin ef smáhýsi fyrir heimilis­lausa yrðu byggð í nágrenninu. Forstjórinn segir oftúlkun að kalla það hótun.

Guðjón Auðunsson forstjóri Reita og Dagur B. Eggertson borgarstjóri undirrituðu samkomulag um uppbyggingu Orkureitsins í gær.
Guðjón Auð­uns­son for­stjóri Reita og Dagur B. Egg­ert­son borg­ar­stjóri und­ir­rit­uðu sam­komu­lag um upp­bygg­ingu Orku­reits­ins í gær. Mynd: Reitir

Reitir fasteigna­félag og Reykja­víkurborg skrifuðu í gær undir samkomulag um uppbyggingu 440 íbúða á svokölluðum Orkureit, sem er á horni Grensás­vegar og Suður­lands­brautar. Gert er ráð fyrir því að uppbygging á reitnum geti hafist á fyrri hluta ársins 2022.

Kjarninn heyrði í Guðjóni Auðuns­syni forstjóra Reita og spurði hann út í fyrir­hugaða uppbyggingu. Blaða­manni lék forvitni á að vita hvers konar íbúðir stæði til að byggja á reitnum. Það segir Guðjón ekki alveg ljóst.

„Nú á eftir að hanna þær endanlega. Það er í sjálfu sér bara búið að magntaka lóðina og draga upp ytri línur af byggðinni eins og hún mun líta út en menn hafa í sjálfu sér dálítið frjálsar hendur ennþá með það hvernig hönnunin á íbúðunum endanlega er,“ segir Guðjón.

Hann bætir við að það sé ekkert víst að Reitir munum fylgja verk­efninu eftir alveg til enda og ákveða hvernig hönnun á einstökum íbúðum er. „Það getur vel verið að verkefnið að hluta til eða öllu leyti verði selt og þeir sem halda á því áfram hafi hærri rödd en við um það hvernig þetta verði nákvæmlega útfært,“ segir Guðjón.

Gamla Rafveitu­húsið, sem oft er kallað Orkuhúsið þrátt fyrir að heilbrigðis­starfsemi undir nafni Orku­hússins sé fyrir allnokkru komin á nýjan stað í Urðar­hvarfi í Kópavogi, mun áfram standa á lóðinni innan um nýbyggingarnar.

„Það er að hluta friðað, hafi menn haft áhuga á að fjarlægja það er það hreinlega ekki heimilt og það fær bara nýtt hlutverk. Ég get ekki alveg sagt frá því hvað það er, því það er ekki búið að klára samninga, en húsið mun standa og fær nýtt hlutverk,“ segir Guðjón.

Reitir hafa í COVID-19 faraldrinum lánað húsið til heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu undir sýnatökur og bólu­setningar. „Svo tekur það vonandi enda fyrr en seinna og síðan fer húsið bara í önnur not,“ segir Guðjón.

Deili­skipulag reitsins, sem brátt verður auglýst formlega af hálfu borgarinnar, byggir á vinnings­tillögu Alark-arkitekta. Tillagan gerir ráð fyrir þriggja til átta hæða hárri byggð með skjól­góðum og sólríkum inngörðum sem eru að hluta til opnir og tengdir saman með göngu- og hjóla­stígum. Byggðin er hæst úti við Suður­landsbraut og Grensásveg en lægri út að Ármúlanum. Hægt er að kynna sér skipulagið betur á vefsvæði sem hefur verið sett upp fyrir reitinn.

Telur „oftúlkun“ að ræða um hótun af hálfu Reita

Reykja­víkurborg hefur uppi áform um að setja upp nokkur smáhýsi fyrir heimilis­lausa íbúa á vannýttu borgar­landi handan Suður­lands­brautarinnar og voru þau áform samþykkt í borgar­ráði í síðustu viku. Reitir settu sig upp á móti þessum skipulags­áformum í fyrra.

Í umsögn fast­eigna­fé­lags­ins sagði að upp­bygg­ing smá­hýsanna, fimm talsins, myndi setja göngu­teng­ingu Orku­reits­ins yfir í Laug­ar­dal „í upp­nám“ og að smá­hýsin gætu jafn­framt haft veru­lega nei­kvæð áhrif á ímynd og sölu­mögu­leika íbúð­anna sem Reitir ætla að byggja.

„Verði deiliskipu­lagið sam­þykkt með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrif­um, áskilur lóð­ar­hafi sér rétt til­ að end­ur­skoða upp­bygg­ing­ar­á­form á Orku­reitn­um. Rétt er að minna á að stefna borg­ar­yf­ir­valda í skipu­lags­málum er sú að þétta byggð með­fram svoköll­uðum þró­unarás og fyr­ir­hug­aðri leg­u ­borg­ar­línu. Að mati Reita væri borgin með umræddri skipu­lags­á­kvörðun að vinna gegn þeirri ­stefnu, verði nið­ur­staðan á þá leið að lóð­ar­hafi hætti alfarið við upp­bygg­ing­ar­á­form sín og hald­i á­fram fast­eigna­rekstri núver­andi bygg­inga á lóð­inni eins og verið hef­ur,“ sagði í umsögn Reita til skipulags­yfirvalda Reykja­víkur.

Spurður út í þetta segist Guðjón telja að athuga­semdir Reita hafi „verið málefnalegar á alla kanta“ og að það sé „oftúlkun“ að lesa það sem svo að Reitir hafi verið að hóta því að hætta við uppbygginguna á Orku­reitnum ef borgar­yfirvöld héldu sig við að setja upp smáhýsi fyrir skjólstæðinga velferðar­sviðs í grenndinni. Forstjórinn telur að í umsögn Reita hafi verið „pent, diplómatískt orðalag um að biðja menn að hugsa sig vel um.“

„Svo geta menn bara haft sína skoðun á því prívat og persónu­lega hvar þessu er best fyrir komið,“ segir Guðjón um smáhýsin.

„Einhversstaðar verður að koma þessu fyrir og mín persónu­lega skoðun er sú að kannski nálægðin við helsta leikvang ungra barna og húsdýra­garðinn og þar sem mikið íþrótta­starf fer fram hjá Þrótti og Ármanni sé nú ekki alveg heppilegasti staðurinn, en við sjáum bara til hvernig þetta fer allt saman,“ segir Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár