Ísland fer fram á að tollasamningur við ESB um landbúnaðarvörur verði endurskoðaður

Utan­ríkis­ráðherra segir að úttekt sýni að „verulegt ójafnvægi“ sé í tolla­samningi Íslands við Evrópu­sambandið um landbúnaðar­vörur. Mikið sé flutt inn en nær ekkert flutt út.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunar­samvinnu­ráðherra, hefur óskað eftir því við Evrópu­sambandið að tolla­samningur Íslands og Evrópu­sambandsins um landbúnaðar­vörur verði endur­skoðaður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir að úttekt sem það lét framkvæma sýni að forsendur samningsins hafa breyst og ójafnvægi er á milli samnings­aðila, íslenskum útflytjendum í óhag.

Markmið tolla­samningsins, sem er frá árinu 2015, hafi verið að skapa tækifæri til aukinna viðskipta milli Íslands og Evrópu­sambandsins. „Fyrr á þessu ári samþykkti ríkis­stjórnin að utan­ríkis­ráðuneytið og atvinnu­vega og nýsköpunar­ráðuneytið skyldu gera úttekt á hagsmunum Íslands af óbreyttum samningi með hliðsjón af þeim breytingum sem orðið hafa frá gildis­töku hans. Úttektin var unnin í nánu samráði við hagsmuna­aðila, forsvars­menn bænda og afurða­stöðva, verslunar og þjónustu, verkalýðs­hreyfinguna og samtök neytenda.

Niður­staða úttektarinnar er að verulegt ójafnvægi ríkir í samningnum. Nýting íslenskra útflytjenda á kvótum til ESB er í flestum tilfellum lítil eða engin á meðan toll­kvótar til innflutnings frá ESB hafa nær allir verið full­nýttir og umtals­vert magn flutt inn utan kvóta. Efnahagslegt mat utan­aðkomandi ráðgjafa frá síðastliðnu vori og vitnað er til í úttektinni stað­festir þetta.“

Í nýlegri skýrslu verðlags­eftirlits Alþýðu­sambandsins sem gerð var fyrir atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið, kom fram að verð á innfluttum kjötvörum og ostum, þar sem toll­kvótar hafa stækkað í samræmi við tolla­samninginn frá 2015, hækkaði mun minna en við mátti búast vegna veikingar krónunnar á tíma­bilinu desember 2019 til september 2020. Í einhverjum tilvikum lækkaði það.

Samhliða hefur úrval af búvörum, bæði innfluttum og innlendum, aukist. Félag atvinnu­rekenda, hagsmuna­samstök ýmissa aðila sem stunda sölu á matvöru, hefur sagt að þessi þróun sýni kosti þess að innlendur land­búnaður hafi samkeppni frá innflutningi.

Halldóra Kristín Hauks­dóttir, stjórnar­kona í Bænda­samtökum Íslands, sagði í grein sem hún birti á Kjarnanum í síðustu viku að segir það væri rangt að tolla­samningurinn sem gerður var við Evrópu­sambandið árið 2015 hafi skilað neytendum lægra verði.

Í grein hennar sagði m.a.: „Það er stað­reynd að kjöt hefur hækkað heldur meira en almennt verð­lag í land­inu, með öðrum orðum bændur fá færri krónur í vas­ann á meðan neyt­and­inn þarf að greiða fleiri. Á sama tíma og tekjur bænda rýrna hafa inn­flytj­endur á land­bún­að­ar­vörum á þessu tíma­bili feng­ið um 3 millj­arða end­ur­greidda frá rík­inu (sem neyt­endur voru búnir að borga) vegna oftek­inna skatta í formi tolla. ­Sam­kvæmt skýrslu starfs­hóps, sem falið var að greina þróun toll­verndar og stöðu íslensks land­bún­aðar gagn­vart breyt­ingum í alþjóð­legu við­skiptaum­hverfi, jókst inn­flutn­ingur land­bún­að­ar­af­urða veru­lega frá 2007 til 2019. Í sumum til­fellum marg­fald­að­ist inn­flutn­ing­ur­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár