Stefán Eiríksson nýr útvarpsstjóri RÚV

Stefán Eiríks­son, sem hefur und­an­farin ár gegnt starfi borg­ar­rit­ara og var þar áður lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefur verið ráð­inn útvarps­stjóri RÚV.

Stefán Eiríks­son, borg­ar­rit­ari Reykja­víkur og fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, er nýr útvarps­stjóri RÚV. Starfs­fólki RÚV var greint frá ráðn­ing­unni rétt í þessu.

Í pósti sem Margrét Magn­ús­dóttir, starf­andi útvarps­stjóri RÚV, sendi á starfs­fólk, sagði:

„Kæra sam­starfs­fólk, Ákörðun um ráðn­ingu útvarps­stjóra liggur nú fyrir en stjórn RÚV hef­ur ákveðið að ráða Stefán Eiríks­son út­varps­stjóra til næstu fimm ára. Ákvörð­unin var tekin sam­hljóða á fundi stjórnar í gær­kvöldi. Stjórn Rík­is­út­varps­ins ræður útvarps­stjóra, ber ábyrgð á ráðn­ing­ar­ferl­inu og öllum ákvörð­unum því tengdu.

Stjórnin lagði áherslu á fag­legt og vandað ráðn­ing­ar­ferli og naut lið­sinnis ráð­gjafa Capacent. Í ráðn­ing­ar­ferl­inu var lögð áhersla á meta umsækj­endur út frá þeim hæfn­is­kröfum sem fram voru sett­ar í aug­lýs­ing­unni um starfið. Þar var rík áhersla lögð á þekk­ingu, reynslu og færni í stjórnun og rekstri og leitað eftir öfl­ugum leið­toga til að stýra RÚV inn í nýja tíma miðl­unar.

Stefán hefur umfangs­mikla reynsla af stjórnun og rekstri, sem stjórn­andi opin­berrar stofn­unar um ára­bil, sem skrif­stofu­stjóri og stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra, sem stjórn­ar­maður og stjórn­ar­for­maður í opin­beru hluta­fé­lagi, sem sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og nú síð­ast sem borg­ar­rit­ari og stað­geng­ill borg­ar­stjóra. Stefán lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og hdl. árið 1997. Þá hefur hann sótt ýmis nám­skeið tengt stjórnun og lokið sér­hæfðu stjórn­enda­námi Bloomberg Harvard City Leaders­hip Ini­ti­ative.“

Stefán var á meðal 41 umsækj­enda um starfið en eins og Kjarninn greindi frá fyrr í dag stóðu fjórir slíkir eftir í síð­ustu viku. Hinir þrír voru Kol­brún Hall­dórs­dótt­ir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, Karl Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri útgáfu­fé­lags DV og fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Þor­steinn Gunn­ars­son, sveit­ar­stjóri í Skútu­stað­ar­hreppi, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Starfið var aug­lýst ­­laust til umsóknar seint á síð­asta ári. Á meðal ann­arra en ofan­greindra sem stað­­fest er að sóttu um starfið eru Svan­hildur Hólm Vals­dótt­ir, aðstoð­­ar­­maður Bjarna Bene­dikts­­sonar fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, Elín Hir­st, fyrr­ver­andi þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks og áður frétta­­stjóri hjá RÚV, Kol­brún Hall­­dór­s­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­­maður Vinstri grænna og umhverf­is­ráð­herra, Her­­­dís Kjerulf Þor­­­geir­s­dóta­t­ir, doktor í lögum með tján­ing­­­­ar­frelsi fjöl­miðla sem sér­­­­­­­svið og er einnig mennt­aður stjórn­­­­­mála­fræð­ing­­­ur, Bald­vin Þór Bergs­­­son, dag­­­skrár­­­stjóri núm­iðla RÚV, Stein­unn Ólína Þor­­­­steins­dótt­ir, leik­­­­kona og fyrr­ver­andi rit­­­­stjóri Kvenna­blaðs­ins, og Kristín Þor­­steins­dótt­ir, fyrr­ver­andi rit­­stjóri Frétta­­blaðs­ins.

Magnús Geir hætti skömmu eftir endurráðningu

Þann 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn var greint frá því að Magnús Geir Þórð­ar­son, sitj­andi útvarps­stjóri, hefði verið skip­aður þjóð­leik­hús­stjóri. Hann hafði þá setið í Efsta­leiti frá því snemma árs 2014 og stjórn RÚV hafði fyrr á árinu 2019 ákveðið að fram­lengja fimm ára ráðn­ing­ar­tíma­bil Magn­úsar Geirs um önnur fimm ár. Upp­­­­haf­­­­legur umsókn­­­­­ar­frestur rann út 2. des­em­ber en ákveðið var að fram­­­­­lengja hann um viku, eða til 9. des­em­ber.

Í aug­lýs­ing­u sagði að útvarps­­­­­stjóri hafi það hlut­verk að „fram­­­fylgja stefnu Rík­­­is­út­­­varps­ins og gæta hags­muna þess í hví­vetna. Leitað er að öfl­­­ugum og reyndum leið­­­toga til að stýra RÚV inn í nýja tíma mið­l­un­­­ar“.

Hæfn­i­­­kröfur eru háskóla­­­menntun sem nýt­ist í starfi, en ekki er til­­­­­tekið hvaða stigi háskóla­­­mennt­unar umsækj­andi þarf að vera búinn að ljúka. Þá var gerð krafa um reynslu af stjórnun og rekstri, leið­­­toga­hæfi­­­leika og góða hæfni í mann­­­legum sam­­­skipt­um, skiln­ing og áhuga á nýjum miðlum og reynslu af stefn­u­­­mót­un­­­ar­vinnu, nýsköpun og inn­­­­­leið­ingu stefn­u.

Við­kom­andi þyrfti auk þess að vera með þekk­ingu og reynslu af fjöl­mið­l­um, menn­ingu og sam­­­fé­lags­­­mál­um, þarf að búa yfir góðri tung­u­­­mála­kunn­áttu og góðri hæfni til að tjá sig í ræðu og rit­i.

Stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins

RÚV er stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Áætlað er að útvarps­­­gjaldið, sem eru helstu rekstr­ar­tekjur þess, verði 4.770 millj­­­ónir króna á þessu ári.

Mennta- og menn­ing­­­ar­­­mála­ráð­herra sagði í ágúst í fyrra að í und­ir­­­bún­­­ingi væri að RÚV hverfi af aug­lýs­inga­­­mark­aði. Rík­­­is­mið­l­inum verði hins vegar bætt upp það tekju­tap en hann hefur haft yfir tvo millj­­­arða króna í slíkar tekjur á und­an­­­förnum árum. Ekki liggur fyrir hvernig sú breyt­ing verði útfærð.

Þjón­ust­u­­­­samn­ingur RÚV við mennta- og menn­ing­­­­ar­­­­mála­ráðu­­­­neyt­ið, sem skil­­­­greinir hlut­verk, skyldur og umfang RÚV, rann út í lok síð­asta árs og við­ræður um end­ur­nýjun hans hafa staðið yfir und­an­farin miss­eri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár