Bætt tölvutækni leysir af sjö þúsund starfsmenn hjá Walmart

Stærsti vinnu­veitandi Banda­ríkjanna hefur innleitt nýtt tölvu­kerfi í rekstrinum, sem hagræðir umtals­vert í rekstrinum.

Walmart, stærsti vinnu­veitandi Banda­ríkjanna, hefur ákveðið að innleiða formlega nýtt tölvu­kerfi í rekstur sinn sem stuðlar að öruggari uppgjörum og gagna­geymslu. Kerfið hefur verið í prófun í verslunum smásölu­risans undan­farna mánuði. Kerfið mun leysa af sjö þúsund starfs­menn fyrir­tækisins, á sviði bókhalds og uppgjörs.

Í sumar var kerfið formlega prófað í 500 verslunum víða um Banda­ríkin og var niður­staðan sú, að umtals­verð hagræðing næðist fram með því að notast við það.

Að sögn breska ríkis­útvarpsins BBC hefur Walmart reynt að fjölga starfs­fólki sem aðstoðar viðskipa­vini í búðum, en fækka í stjórnun og höfuð­stöðvum.

Samtals vinna 2,2 milljónir hjá Walmart um allan heim, og þar af eru 1,5 milljónir í Banda­ríkjunum. Fyrir­tækið hefur lengi verið gagnrýnt fyrir að greiða lág laun, en lágmarks­laun fyrir­tækisins, sem stór hluti starfs­manna þess fær greitt eftir, fá 10 Bandaríkja­dali á tímann, eða sem nemur 1.170 krónum á klukku­stund.

Sam Walton er stofnandi fyrir­tækisins, og er Walton fjöl­skyldan ennþá stærsti eigandi þess. Fjórir fjölskyldu­meðlimir eru á meðal 10 ríkustu einstaklinganna í Banda­ríkjunum. Heildar eignir Walmart eru metnar um 200 milljarðar Bandaríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár