Myndband Áfram Ísland um málskotsréttinn horfið

Áfram Ísland sagði rang­lega að mál­skots­réttur for­seta mundi hverfa við inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið og að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur heyrðu þá mögu­lega sög­unni til. Myndband með þessum full­yrð­ingum er horfið af sam­fé­lags­miðlum hreyf­ing­ar­innar.

Myndband frá Áfram Ísland
Myndband frá Áfram Ísland Myndband um for­seta­emb­ættið er ekki lengur á sam­fé­lags­miðlum hreyf­ing­ar­innar.

Áfram Ísland, hreyf­ing sem telur hags­munum Íslands best borgið utan Evr­ópu­sam­bands­ins, birti nýverið mynd­band á sam­fé­lags­miðlum þar sem því er haldið fram að mál­skots­réttur for­seta Íslands hverfi við ESB-aðild. Mynd­bandið er nú hvergi að finna á miðlum hreyf­ing­ar­innar.

„Vissir þú að ef við göngum í Evr­ópu­sam­bandið að þá er for­set­inn okkar eig­in­lega bara til skrauts?“ var sagt í mynd­band­inu. „Í dag getur for­seti skotið málum til þjóð­ar­innar og leyft henni að kjósa, svona eins og í Icesave. En ef við göngum í Evr­ópu­sam­bandið væri þessi hluti lýð­ræð­is­ins bara tek­inn af okkur.“

Mál­skots­rétt­ur­inn svo­kall­aði, sem er bund­inn í 26. grein stjórn­ar­skrár­innar, heim­ildar for­seta Íslands að synja laga­frum­vörpum sem hafa verið sam­þykkt á Alþingi og vísa þeim í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Í mynd­band­inu er því haldið að mál­skots­rétt­ur­inn yrði „tek­inn af okkur“ við inn­göngu í ESB. „Þetta er bara hvernig Evr­ópu­sam­bandið virkar,“ var sagt í mynd­band­inu. „Það má því velta fyrir …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Þetta er dæmi um upplýsingaóreiðu sem þarf að forðast. Hræðsluáróður og bull.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þetta er a.m.k. að hluta til rétt því ef Ísland yrði aðildarríki ESB myndi strax taka gildi ríkisábyrgð á innlánatryggingum, eins og sú sem við höfnuðum í BINDANDI þjóðaratkvæðagreiðslu í svokölluðu Icesave máli árið 2011, sem fór fram á grundvelli stjórnarskrárinnar eftir að Forseti Íslands beitti málskotsrétti sínum. Enginn hefur heimild til að virða niðurstöðu bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu að vettugi og þess vegna er aðild Íslands að ESB útilokuð. Vel að merkja er ekki meðal samningsmarkmiða stjórnvalda að krefjast undanþágu frá þessu aðildarskilyrði og því verður aðeins lögmætur svarmöguleiki á kjörseðli í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fer fram 29. ágúst. Jafnvel þó hver einasti kjósandi myndi merkja við "já" yrði það samt að vettugi virðandi því ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla getur aldrei gengið framar niðurstöðum lagalega bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
    -4
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Þjóðaratkvæðagreiðslur eru alltaf bindandi og endanlegar!
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár