Maki stjórnarmanns selur í PLAY

Óbein ítök eins stjórnar­manna PLAY í félaginu minnkuðu eftir að eigin­maður hennar seldi hlutabréf í því í síðustu viku. Þó eru þau enn töluverð, en makinn á tæpt prósent í flug­félaginu.

Eigin­maður Guðnýjar Hans­dóttur, stjórnar­manns í flug­félaginu PLAY, seldi hlutabréf í félaginu í síðustu viku í gegnum eignarhalds­félag sem hann á tæpan þriðjungs­hlut í. Með sölunni minnkar eignar­hlutur eigin­mannsins í félaginu um 6,5 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á vef Kaup­hallar fyrr í dag.

Samkvæmt tilkynningunni á eigin­maðurinn 29,1 prósenta hlut í eignarhalds­félaginu Dalía ehf., sem seldi tæplega 945 þúsund hluti í PLAY á 24 krónum á hvern hlut. Heildar­andvirði sölunnar nam því um 22,7 milljónum króna, en með því minnkaði beinn eignar­hlutur makans um 6,5 milljónir króna.

Dalía ehf. er tíundi stærsti hluthafi PLAY, með 3,01 prósenta eignar­hlut og rúmlega 21 milljón hluti í félaginu. Eignar­hlutur maka Guðnýjar nemur því tæpu prósenti af flug­félaginu núna eftir söluna. Áður en PLAY var skráð á hlutabréfa­markað var Dalía sjötti stærsti hluthafi þess, með um 22 milljónir hluta í félaginu.

Salan átti sér stað þegar hlutabréfa­verð PLAY hafði hækkað nokkuð í síðustu viku var þá komið á sömu slóðir og á fyrstu dögum félagsins í reglu­legum viðskiptum um miðjan júlí. Hlutabréfa­verð í félaginu lækkaði svo hins vegar nokkuð samhliða nýrrar smit­bylgju Delta-afbrigðis kórónu­veirunnar og hélst það á bilinu 20-23 krónum á hlut frá síðari hluta júlí fram að 24. september.

Eftir kosningarnar hefur verðið á hluta­bréfum í PLAY svo hækkað umtals­vert, en það var komið í 23 krónur á hlut eftir lokun markaða á þriðjudaginn 28. september. Verðið hefur svo haldið áfram að hækka eftir hlutabréfa­sölu Dalíu ehf., en það er nú komið upp í 27,2 krónur á hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár