Kristrún íhugar formannsframboð

Kristrún Frosta­dóttir, þingmaður Samfylk­ing­ar­innar, segist „íhuga alvarlega“ að bjóða sig fram til formanns á lands­fundi flokksins í október. Logi Einarsson tilkynnti um miðjan júní að hann muni ekki bjóða sig fram að nýju.

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Ef ég læt slag standa geri ég þetta ekki ein. Ég ætla að taka loka­ákvörðun í sumar og reikna með að upplýsa hana eftir verslunar­manna­helgi,“ segir Kristrún Frosta­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í viðtali í Frétta­blaðinu í dag. Þar greinir hún frá því að hún sé að „íhuga alvarlega“ að bjóða sig fram til formanns. Fyrst vilji hún heyra í félögum sínum í flokknum og kanna hvort fólk „vilji koma með í þetta stóra verkefni“.

Logi Einarsson, sem setið hefur sem formaður Samfylkingarinnar lengur en nokkur annar í rúmlega 22 ára sögu flokksins, eða frá haustinu 2016, mun hætta sem formaður á lands­fundi í október. Með því er hann að axla ábyrgð á slælegu gengi flokksins í síðustu þing­kosningum þar sem hann tapaði fylgi og fékk einungis 9,9 prósent atkvæða. Frá þessari ákvörðun sinni greindi hann í viðtali við Frétta­blaðið 18. júní síðastliðinn.

Kristrún og Dagur B. Eggertsson „borgar­stjóri og fyrr­verandi vara­formaður Samfylkingarinnar, hafa einkum verið nefnd sem mögulegir arftakar Loga. Kristrún segir við Frétta­blaðið að sér þyki vænt um að horft sé til hennar í þessu sambandi.

„Við Dagur erum góðir vinir og vinnum vel saman,“ segir hún, aðspurð um hvort ákvörðun Dags, sem enn liggur ekki fyrir, myndi hafa áhrif á framboð hennar. „Hann mun taka sína ákvörðun út frá eigin brjósti.“

Logi sagði er hann tilkynnti um ákvörðun sína að hætta sem formaður að það hefði orðið „augljóst“ eftir þing­kosningarnar síðasta haust að flokkurinn hefði ekki uppskorið það sem liðsmenn hans vonuðust eftir „og mér fannst þá gefið að ég myndi axla mín skinn […] Ég ætlaði að hætta strax, en ég var hvattur til að bíða með þá ákvörðun, að minnsta kosti um sinn“.

Nú væri hins vegar tímabært að greina frá ákvörðuninni. „Ég er að hætta sem formaður af því að ég er sann­færður um að aðrir geti gert betur en ég.“

Formaður frá 2016

Logi hefur, líkt og áður sagði, verið for­maður flokks­ins frá árinu 2016. Logi, þá eig­in­lega algjör­lega óþekktur í stjórn­málum utan heima­byggð­ar, hafði boðið sig fram til vara­for­manns á lands­fundi sama ár og unn­ið.

Fimm mán­uðum síðar sagði Oddný Harð­ar­dóttir af sér for­mennsku til að axla ábyrgð á hörmu­legu gengi í þing­kosn­ingum – flokk­ur­inn fékk 5,7 pró­sent atkvæða sem var og er versta frammistaða hans í sögunni – og Logi, eini kjördæma­kjörni þingmaður flokksins á þeim tíma, var allt í einu orð­inn for­mað­ur.

Í við­tali við Mann­líf árið 2019 sagði Logi að hann hafi „svo sem ekki verið að sækj­ast eftir áhrifum eða leið­toga­hlut­verki en ég enda þar.“ Hann var í kjöl­farið kall­aður útfar­ar­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar en óvæntar kosn­ingar 2017 leiddu til þess að flokk­ur­inn tvö­fald­aði fylgi sitt og lifði fyrir vikið af.

Von­brigðin með árang­ur­inn 2021 voru hins vegar mikil og augljós. Tapað fylgi og næst versta nið­ur­staðan í 22 ára sögu flokks­ins stað­reynd þrátt fyrir samfellda setu í stjórnar­andstöðu frá vorinu 2013.

Kjós­­endur Sam­­fylk­ing­­ar­innar voru auk þess þeir kjós­­endur sem voru minnst ánægðir með frammi­­stöðu for­­manns þess flokks sem þeir studdu í síð­­­ustu kosn­­inga­bar­áttu. Ein­ungis 53,5 pró­sent þeirra sögðu Loga hafa staðið sig vel.

Og þar ber ég ábyrgð

Á flokks­stjórn­ar­fundi í mars síð­ast­liðnum flutti Logi ræðu þar sem hann gerði upp von­brigð­in. „Ef við horfum gagn­rýnum augum inn á við er vafa­laust hægt að leita skýr­inga víða; aðferðir við val á lista, mótun skila­boða, sam­skipta­hátt­um, mannauð og for­ystu flokks­ins. Og þar ber ég að sjálf­sögðu ábyrgð.“ Á lands­fundi í októ­ber 2022 yrðu teknar „stórar ákvarð­anir um fram­tíð flokks­ins.“

Þessi orð voru túlkuð sem skýr vís­bend­ing um að for­manns- og for­ystu­skipti væru framundan hjá Samfylkingunni sem kom svo á daginn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár