Sambúðin sem verður ekki: Salka Valka giftist aldrei Bogesen kaupmanni

Þótt Vinstri grænir og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn séu með keim­líkar áherslur á mörgum sviðum eru Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son ill­sam­rým­an­legar týpur.

Þegar þetta er skrifað á mið­viku­dags­morgni í fyrstu viku aðventu hafa Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, ákveðið að hefja óform­legar sam­ræður um hvort þau eigi að hefja form­legar við­ræður um myndun rík­is­stjórnar.

Þau til­kynntu það víst í gær­morgun.

Og þó. Á slíka yfir­lýs­ingu er ekki mikið að treysta eins og kaupin ger­ast á stjórn­ar­mynd­un­ar­eyr­inni þessa dag­ana. Þar er allt á floti og eng­inn veit hvert straum­arnir liggja. Eða öllu heldur: Þeir liggja út um allt og eng­inn stendur föstum fótum. Flestir eru blautir í lapp­irnar og finnst það fremur óþægi­legt.

Óumbeðin yfirlýsing

Tvennt gerir yfir­lýs­ing­una þó athygl­is­verða. Hið fyrra er að eng­inn bað um að hún yrði gefin út, sam­kvæmt heim­ildum mínum úr báðum her­búðum. Guðni Th. Jóhanes­son for­seti ákvað að eigin frum­kvæði að senda hana út sem frétta­til­kynn­ingu að morgni þriðju­dags.

Það gerð­ist eftir að Bjarni og Katrín …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár