Lilja segir Bjarna og Katrínu líka hafa efast um Íslandsbankasöluna

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir viðskipta­ráðherra segir að samráð­herrar hennar í ráðherra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins hefðu, þau Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobs­dóttir hafi haft efasemdir um að selja hluti ríkisins í lokuðu útboði.

Allir með efasemdir
Allir með efa­semdir Lilja vakti athygli þegar hún sagð­ist hafa lýst efa­semdum um að selja hluti rík­is­ins í Íslands­banka í lok­uðu útboði við sam­ráð­herra sína í rík­is­stjórn. Mynd: Davíð Þór

„Það voru efasemdir um þessa aðferð hjá öllum ráðherrum,“ sagði Lilja Alfreðs­dóttir viðskipta­ráðherra á Alþingi í morgun um sölu­meðferð 22,5 prósenta hlutar ríkisins í Íslands­banka. Vísaði hún þar til þess að bæði Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármála­ráðherra, og Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra, sem sitja ásamt Lilju í ráðherra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins hefðu, hafi haft efasemdir um að selja hluti ríkisins í lokuðu útboði. 

Hún sagðist hafa furðað sig á því að ekki hefði verið farin sama leið og þegar opið útboð fór fram á 35 prósenta hlut ríkisins í bankanum á síðasta ári. Þá bauðst öllum almenningi að kaupa hlut í opnu ferli. Útboðið nú síðast var aftur á móti lokað og aðeins ætlað svokölluðum fagfjárfestum.

„Þá þótti mér undarlegt að við skyldum breyta þeirri aðferð vegna þess að hún gekk vel,“ sagði Lilja. Banka­sýslan hafi hins vegar lagt til breytta aðferð, sem allir ráðherrarnir hefðu haft efasemdir um. „Hún gerir það eftir að hafa ráðfært sig við sérfræðinga, bæði innlenda og erlenda,“ sagði hún og bætti við síðar: „Það kann að vera að sú aðferð sem Banka­sýslan lagði til, að hún hafi verið rétt.“

Þessi orð fóru ekki vel í þingmenn stjórnar­andstöðunnar sem flykktust í ræðustól undir liðnum fundar­stjórn forseta sem kepptust um að furða sig á orðum ráðherrans. „Þeir sáu ekki ástæðu til að upplýsa þingið um þessar áhyggjur sínar […] Létu nægja að vara sjálfa sig við án þess að bóka neitt um það,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. „Vara eindregið við því sem þeir gera en halda þinginu alveg utan við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Lilja Loðhúfa farin að bera í bætifláka fyrir Vellýgna Bjarna og Katrínu. Getiði af hverju?
    0
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    En eitthvert þeirra kveður uppúr um að fara að ráðum bankasýslunnar þrátt fyirr áhyggjurnar - Hvert þeirra skyldi það nú vera?
    Og svo kemur í ljos að Bankasýslan veldur ekki verkefninu og allar undirstofnanirnar líta svo á að nú sé tækifæri til að reyta hænuna
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár