Umfjöllun um blóðmerahald í útlöndum valdi íslenskri ferðaþjónustu skaða

Formaður Samtaka ferða­þjónustunnar segir að einungis 7.700 ferðamenn þurfi að ákveða að koma ekki til Íslands til þess að efnahags­legur skaði af því fyrir þjóðar­búið verði meiri en ávinn­ing­urinn af blóðtöku úr fylfullum merum.

Bjarnheiður Halls­dóttir, formaður Samtaka ferða­þjónustunnar, segir að nýleg umfjöllun um blóð­merahald á Íslandi á mörgum helstu markaðs­svæðum íslenskrar ferða­þjónustu hafi leitt til þess að símtölum og fyrir­spurnum hafi „rignt yfir ferða­þjónustu­fyrirtæki bæði hér heima og erlendis“ og valdið „truflunum í eftir­spurn“ eftir íslenskri ferða­þjónustu.

Þetta kemur fram í aðsendri grein sem Bjarnheiður birtir á Vísi í dag, en þar veltir hún því upp hvort verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni með því að leyfa blóðtöku úr fylfullum merum á Íslandi með tilheyrandi hættu á skaðlegri umfjöllun erlendis.

„Útflutnings­verðmæti á blóði úr fylfullum hryssum eru áætluð um tveir milljarðar króna á ári. Til saman­burðar eru útflutnings­tekjur af 7700 ferða­mönnum sem sækja Ísland heim um tveir milljarðar króna. Þó að umfjöllun um blóð­merahald fæli aðeins um 7700 ferðamenn frá því að koma til landsins þá eru þessir tveir milljarðar úflutningstekna tapaðir,“ segir í grein Bjarnheiðar.

Hún bætir því við að reynslan af áhrifum hvalveiða á ímynd Íslands og ferða­þjónustu sýni að það sé „fyllilega raunhæfur fjöldi“ og ef áhrifin verði enn meiri en það, sem sé „mjög líklegt“, verði blóð­merahald „farið að valda beinum efnahags­legum skaða“.

Bjarnheiður spyr hvort blóð­merahald og útflutningur á blóði úr fylfullum merum, sem að endingu nýtist við fram­leiðslu hormóna til svína­eldis, sé „góður „bisness“ fyrir Ísland í heildar­samhenginu“.

Megi reikna með neikvæðum áhrifum á hestahagkerfið

Í grein sinni nefnir hún einnig að reikna megi með því að umfjöllun um blóð­merahald á Íslandi í erlendum fjöl­miðlum í kjölfar þess að evrópsk dýra­verndunar­samtök komu til landsins og tóku í laumi upp myndskeið af blóðtöku fylfullra mera hafi skaðleg áhrif á „hesta­hagkerfið“ á Íslandi.

Bjarnheiður bendir á að á síðasta ári hafi um 3.300 íslensk hross verið seld úr landi fyrir andvirði um 2,2 milljarða króna og að í því samhengi skipti ímynd íslenska hestsins miklu.

Umdeilt mál

Blóð­merahald sem búgrein hefur verið töluvert í umræðunni á undan­förnum mánuðum, en í nóvember birtu dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Animal Welfare Founda­tion í Þýska­landi og Tierschutz­bund Zürich í Sviss tutt­ugu mín­útna mynd á YouTube sem sýnir slá­andi með­ferð íslenskra hryssa við blóð­töku.

Þetta hefur vakið upp miklar umræður og kalla sumir eftir því að búgreinin verði alfarið bönnuð hið snarasta og frumvarp þess efnis er til meðferðar á þingi. Aðrir segja hins vegar að mynd­skeiðið frá evrópsku dýraverndar­samtökunum hafi verið áróðurs­myndband sett fram af öfgahópum og myndefnið endur­spegli alls ekki hvernig er almennt staðið að blóðtöku úr merum hérlendis.

Matvæla­stofnun rann­sakaði meint alvarleg brot og vísaði þeim svo áfram til lögreglu, sem fer nú með málin. Í upphafi árs skipaði Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra svo þriggja manna hóp sem á að skoða starfsemina og regluverk og eftirlit í kringum búgreinina.

„Ráð­herra hefur falið hópnum að funda með hag­að­ilum auk þess sem almenn­ingi mun gef­ast kostur á að tjá sig um störf og til­lögur hóps­ins á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda þegar þær liggja fyr­ir. Starfs­hóp­ur­inn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráð­herra til­lögum sínum fyrir 1. jún­í,“ ­sagði í til­kynn­ingu atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins frá 3. janúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár