Spjótin beinast að Facebook

Stjórn­endur Facebook eru sagðir hafa rætt það sína á milli hvort Facebook hafi átt þátt í því að Trump sigraði í kosningunum.

Stjórn­endur samfélagsmiðlarisanans Facebook ræddu um það sína á milli, í kjölfar þess að Donald Trump vann Hillary Clinton í forseta­kosningunum í síðustu viku, hvaða hlutverk Facebook hefði spilað í kosninga­úrslitunum. Frá þessu var greint í New York Times í dag.

Í umfjölluninni er vitnað til þriggja heimildar­manna sem sáu umræðurnar meðal stjórn­enda fyrir­tækisins. Lýstu þeir yfir áhyggjum sínum af því að Facebook hefði verið að dreifa misvísandi upplýsingum - og í mörgum tilfellum röngum - sem hefðu átt sinn þátt í kosningar­úrslitunum. „Var þetta okkur að kenna?“ á einn þeirra að hafa sagt.

Málið er viðkvæmt fyrir Facebook og forstjórann og stofn­andann Mark Zuckerberg, sem hefur ítrekað lýst því yfir að ritskoðunar­tilburðir séu ekki stundaðir innan fyrir­tækisins.

Notendur Facebook eru 1,7 milljarður manna mánaðar­lega um allan heim, og í Banda­ríkjunum eru virkir notendur yfir 270 milljónir. Áhrif samfélags­miðilsins á fjölmiðla­umræðu eru afgerandi mikil, en algengt er að umræða inn á frétta­vefi komi um 60 til 70 prósent beint af samfélags­miðlinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár