Røkke ætlar að gefa megnið af eignum sínum

Norski milljarð­armær­ingurinn er einn af ríkustu mönnum Norður­landa.

Kjell Inge Røkke er einn rikasti maður Noregs.
Kjell Inge Røkke er einn rikasti maður Noregs.

Norski milljarðamæringurinn Kjell Inge Røkke ætlar að gefa megnið af eignum sínum en eignir hans eru metnar á 17,2 milljarða norskra króna, eða sem nemur um 212 milljörðum króna miðað við núverandi gengi (norsk króna = 12,3 ISK).

Í viðtali Aftenposten í gær upplýsti hann að hann hygðist styrkja náttúru­verndar­sjóðinn World Wildlife Fund, meðal annars með því að fjárfesta í nýju skipi sem sjóðurinn ætlar að nota til rannsókna. „Ég ætla að gefa til samfélagsins bróður­partinn af því sem ég hef þénað. Þetta skip er hluti af því,“ segir Røkke í viðtali við Aftenposten. 

Skipið á að vera tilbúið til notkunar sumarið 2020 eða eftir ríflega þrjú ár.

Røkke hefur nú þegar sett á laggirnar mennta­sjóð sem ber nafnið Aker Scholarship en sjóðurinn fjár­magnar meistara- og doktorsnám þeirra sem hljóta styrk hjá sjóðnum, við marga af virtustu háskólum heimsins, þar á meðal Oxford, Harvard, MIT, Caltech, Háskólann í Pennsylvaníu, Cambridge og Ríkis­háskólann í Singapúr.

Í fyrra fékk 21 nemandi styrk úr sjóðnum en Røkke ætlar að láta 40 til 50 nemendur fá styrk árlega frá og með næsta ári.

Røkke á eignir í hinum ýmsu atvinnu­geirum, en fjár­festingar hans eru að miklu leyti í Noregi. Meðal annars í sjávar­útvegi og olíu­iðnaði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár