Kaupfélag Skagfirðinga lagði Morgunblaðinu til fé í upphafi árs

Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á eig­anda Morg­un­blaðs­ins sem birtar eru á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar eru ekki í sam­ræmi við upp­lýs­ingar sem komu fram í við­tali við for­svars­mann eins hlut­hafans í við­tali við blaðið á mið­viku­dag.

Ósamræmi er í upp­lýs­ingum um eign­ar­hlut Kaup­fé­lags Skag­firð­inga (KS) í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, sem birt­ust í við­tali við Þórólf Gíslason, kaup­fé­lags­stjóra, í blað­inu á mið­viku­dag, og þeim upp­lýs­ingum sem birtar eru á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar.

Í við­tal­inu við Þórólf kom fram að KS ætti ríf­lega fimmt­ungs­hlut, eða yfir 20 pró­sent, í Þórsmörk ehf., eig­anda Árvakurs. Samkvæmt skrán­ingu sem birt er á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar segir að KS eigi, í gegnum dótt­ur­fé­lagið Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., 15,84 pró­sent hlut í Þórsmörk.

Samkvæmt lögum um fjöl­miðla á að til­kynna henni um allar eig­enda­breyt­ingar á fjöl­miðlum innan tveggja virkra daga frá því að kaup­samn­ingur er gerður. Í ljósi þess að hluta­fjár­aukn­ing í Árvakri var skráð 21. jan­úar síð­ast­lið­inn þá hefur ekki verið farið eftir ofan­greindum lögum um skrán­ingu á eign­ar­haldi, enda má ekki skrá nýtt hlutafé nema að það hafi þegar verið greitt.

Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á Þórsmörk voru síð­ast upp­færðar á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar 13. sept­em­ber 2017.

Heimild til að auka hlutafé um allt að 400 milljónir

Árvakur er útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og útvarps­stöðv­ar­innar K100. Félagið er eina eign Þórs­merk­ur. Árvakur hefur glímt við mik­inn halla­rekstur á und­an­förnum árum og hlut­hafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé.

Tap félags­ins á árinu 2017 var til að mynda 284 millj­ónir króna. Það var fimm­falt meira tap en árið 2016. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 og fram til loka árs 2017 tap­aði félagið tæp­­lega 1,8 millj­­örðum króna. Þótt árs­reikn­ingur fyrir árið 2018 hafi ekki verið birtur virð­ist ljóst að Árvakur hélt áfram að tapa pen­ingum í fyrra.

Kjarninn greindi frá því í febr­úar síð­ast­liðnum að hlutafé í Þórsmörk, eig­anda Árvakurs, hefði verið aukið um 200 millj­ónir króna þann 21. jan­úar 2019. Auk þess var sam­þykktum félags­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­féð um allt að 400 millj­ónir króna til við­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir til árs­loka 2019.

KS setti 100 milljónir inn í byrjun árs

Í Frétta­blað­inu sama dag var haft eftir Sig­ur­birni Magn­ús­syni, stjórn­ar­for­manni Þórs­merk­ur, að hluta­fjár­aukn­ingin hefði öll komið frá þeim hlut­höfum sem fyrir voru.

Því hefði hlut­hafa­hópur félags­ins ekki tekið breyt­ing­um. Ekkert var hins vegar greint frá því hverjir úr hlut­hafa­hópnum hefðu lagt félag­inu til nýtt fé.

Miðað við þær upp­lýs­ingar sem birt­ust í við­tal­inu við Þórólf þá hefur KS lagt til að minnsta kosti helm­ing þess nýja hluta­fjár sem lagt var inn í Þórsmörk í jan­úar, eða 100 millj­ónir króna. Áður átti félagið 225 millj­ónir hluta af 1.421 millj­óna hlutafé. Nú á KS að minnsta kosti 20 pró­sent af 1.621 milljón hlutafé, eða að minnsta kosti 325 millj­ónir hluta.

Stærsti eig­andi Þórs­merkur eru félög tengd Ísfélagi Vest­manna­eyja. Fyrir hluta­fjár­aukn­ing­una í jan­úar áttu þau tæp­lega 30 pró­sent í félag­inu.

Aðrir stórir eig­endur eru félagið Ramses II, í eigu Eyþórs Arn­alds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg, sem átti 22,87 pró­sent eign­ar­hlut fyrir hluta­fjár­aukn­ingu og KS.

Flestir aðrir eig­endur Þórs­merkur tengj­ast sjáv­ar­út­vegi.

Kaupfélagsstjórinn telur vandaða fjölmiðla mikilvæga

Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið á mið­viku­dag var Þórólfur spurður um það hvað varð til þess KS ákvað að fjár­festa í fjöl­miðla­rekstri. „Við lítum þannig á að það sé mik­il­vægt að til staðar séu vand­aðir fjöl­miðlar sem ekki eru rík­is­reknir. Ríkið er fyr­ir­ferð­ar­mikið á þessum mark­aði sem er ekki hollt til lengdar, og í raun mjög umhugs­un­ar­vert, enda þörfin ekki eins brýn og áður var. Ríkið rak einu sinni dreifi­kerfi á kart­öflum, en er hætt því sem dæmi. Þessi mikli rekstur rík­is­ins á fjöl­miðlum býður upp á ákveðna hættu. Að fjöl­mið­ill­inn verði ríki í rík­is­kerf­inu og leiði skoð­ana­myndun. Við þekkjum það í löndum þar sem ekki er virkt lýð­ræði, að þar eru rík­is­fjöl­miðlar mjög fyr­ir­ferð­ar­miklir.“

Í kjöl­far þess að nýir eig­endur tóku við Morg­un­blað­inu á árinu 2009 voru Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, borg­ar­stjóri, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra og seðla­banka­stjóri, og Haraldur Johann­es­sen, sem hafði verið rit­stjóri og eig­andi Við­skipta­blaðs­ins, ráðnir rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins. Þeir sinna enn því starfi.

Þegar þeir voru ráðnir lásu 43 pró­sent lands­manna Morg­un­blaðið. Í síð­ustu mæl­ingu Gallup á lestri blaðs­ins mæld­ist hann 23,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár