140 þúsund Evrópubúar skrifa undir áskorun gegn laxeldi í opnum sjókvíum

Nú hafa tæplega 140 þúsund manns víðs vegar úr Evrópu skrifað undir áskorun um að laxeldi í opnum sjókvíum verið hætt við Ísland, Noreg, Skotland og Írland.

Tæplega 140 þúsund Evrópu­búar hafa skrifað undir áskorun til íslenskra, norskra, skoskra og írskra stjórn­valda um að laxeldi í opnum sjókvíum verði hætt en frumvarp um fiskeldi er nú til umfjöllunar á Alþingi. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins í dag.

Ryan Gellert, framkvæmda­stjóri hjá bandaríska útivistar­vöru­fram­leiðandanum Patagonia, segir í samtali við Frétta­blaðið að nú fylgist náttúru­verndar­sinnar um alla Evrópu með því hvað sé að gerast á íslenska þinginu. „Þetta er fólk sem er umhugað um brothætt vistkerfi heimsins og það kallar eftir því að útgáfa leyfa fyrir laxeldi í opnum sjókvíum verði hætt og þau leyfi sem þegar hafa verið gefin út verði afnumin í áföngum.“

Auk Patagonia standa NASF, Verndar­sjóður villtra laxa­stofna, og sambærileg samtök í Noregi, Skotlandi og Írlandi að baki undir­skrifta­söfnuninni. Til stendur að afhenda Alþingi undir­skriftirnar áður en atkvæði verða greidd um frumvarp sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra um breytingar á lögum um fiskeldi, samkvæmt fréttinni.

Annarri umræðu um frum­varpið var frestað á fimmtudaginn síðastliðinn en var það þó rætt á tveimur fundum atvinnu­veganefndar á föstudag.

Framsögumaður skynjar að áhyggjur fólks séu víðtækar

Kolbeinn Óttarsson Proppé, fram­sögumaður meirihluta nefndarinnar í málinu, segist skilja áhyggjur fólks og skynja að þær séu víðtækar. „Einmitt þess vegna höfum við í vinnu nefndarinnar fyrst og fremst lagt áherslu á umhverfis­þætti. Við viljum herða sem best allar skrúfur hvað það varðar og hvetja sem mest til umhverfis­vænni fram­leiðslu,“ segir Kolbeinn við Frétta­blaðið.

Kolbeinn segir jafnframt að nefndin hafi sett fram þá sýn að eldi á frjóum laxi verði ekki stundað í opnum kvíum. „Það er þangað sem við eigum að stefna. Það þarf að horfa til þess að uppbyggingin verði í skrefum þar sem allra þessara þátta er gætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár