Áhlaup á yfir 100 staði í fjórum Evrópulöndum

Yfir 1.000 lögreglu­menn tóku þátt í aðgerðum á meira en 100 stöðum í fjórum löndum. Framkvæma á 14 handtöku­skipanir og leggja hald á eignir að andvirði um 48,6 milljóna evra.

Englarnir
Englarnir Lög­reglan vildi „hvorki stað­fest né neitað“ því hvaða sam­tök væru skot­mark aðgerð­anna en þýskir fjöl­miðlar full­yrða það sé Hells Angels. Mynd: EPA

Lögregla gerði á miðvikudag áhlaup á vélhjóla­gengi í Þýska­landi og þremur öðrum Evrópu­löndum, að sögn lögreglu­yfirvalda. Fjöl­miðlar greindu frá því að aðgerðin hefði beinst gegn Hells Angels.

Aðgerðirnar hófust snemma á miðvikudag og beindust að meira en 100 stöðum í Þýska­landi, Belgíu, Búlgaríu og Hollandi. Yfir 1.000 lögreglu­menn tóku þátt, að sögn þýsku lögreglunnar.

„Verið er að fram­fylgja 14 handtöku­skipunum og leggja hald á eignir að andvirði um 48,6 milljóna evra,“ sagði lögreglan í Duisburg í vestur­hluta Þýska­lands. Sú fjárhæð er jafnvirði 6,6 milljarða króna.

„Rann­sóknirnar beinast að alls 71 grunuðum, þar á meðal þeim sem standa að peningaþvættis­neti sem starfar í Þýska­landi og víðar í Evrópu, auk hátt­settra félaga í vélhjóla­gengi,“ sagði í yfir­lýsingu lögreglunnar.

Talskona lögreglunnar sagði við AFP að hún gæti „hvorki staðfest né neitað“ því hvaða samtök væru skotmark aðgerð­anna. Dagblaðið Bild og aðrir fjöl­miðlar sögðu að um Hells Angels væri …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár