Sjá eftir að hafa ekki stöðvað „kynferðislega áreitni“ Brynjars

Fundar­stjóri og fundar­maður á fundi Siðmenntar sjá eftir því að hafa ekki gripið inn í. „Ég fann mig knúna til að biðja hana afsökunar á að hafa ekki stigið fram og beðið manninn um að hætta,“ sagði Helga Vala Helga­dóttir í kosninga­þætti Stöðvar 2 vegna tilburða Brynjars Níels­sonar gagnvart Steinunni Þóru Árna­dóttur.

Helga Vala Helga­dóttir, fram­bjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík, hringdi í Steinunni Þóru Árna­dóttur, þingkonu Vinstri grænna, og bað hana afsökunar á að hafa ekki gripið inn í vegna tilburða Brynjars Níels­sonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins, gagnvart henni á fundi Siðmenntar með fulltrúum stjórn­málaflokka í gær. 

Á fundinum sagðist Brynjar vera skotinn í Steinunni, hallaði sér upp að henni meðan hún talaði og spurði hvort hann mætti kyssa hana. 

Bjarni Jónsson, framkvæmda­stjóri Siðmenntar sem stýrði fundinum, tjáir sig um atvikið á Facebook og segist hafa upplifað „ofbeldi“ og „kynferðis­lega áreitni“. Honum hafi orðið verulega brugðið og sjái eftir því að hafa ekki tekið harðar á framgöngu Brynjars.  

Hefði átt að stöðva Brynjar

„Ég var á þessum fundi og þetta var algjör­lega ömurlegt,“ sagði Helga Vala í kosninga­þætti Stöðvar 2 í kvöld.

„Ég hafði samband við Steinunni í gær, því ég fann mig knúna til að biðja hana afsökunar á að hafa ekki stigið fram og beðið manninn um að hætta. Því þetta var ekki í eina skiptið sem hann kom fram við hana með þessum hætti. Hann bað hana um að kyssa sig en hann var líka endalaust að segja henni hvað hann væri skotinn í henni og eitthvað – ofsa fyndinn! – en því miður á var þetta alveg ótrúlega ósmekklegt.“

„Ég fann mig knúna til að biðja hana
afsökunar á að hafa ekki stigið fram
og beðið manninn um að hætta“

Aðrir fram­bjóðendur tóku undir þetta, en Sigríður Andersen, fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, vildi ekki gera mikið úr atvikinu. 

Hún sagði að sér hefði fyrst verið brugðið þegar hún las frétt um málið. Svo hefði hún hins vegar horft á mynd­bandið. 

Sigríður Andersenstarf­andi dóms­mála­ráð­herra og fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins

„Þetta var nú ekki eins og ég hafi ímyndað mér heldur var það augljóst að hann var bara innilega sammála henni Steinunni Þóru um það sem hún var að ræða þarna, og setur þetta svona fram, sem er nú ekki skemmtilegt,“ sagði Sigríður. „Þetta er nú ekki boðlegt að mínu mati, sérstak­lega við svona aðstæður, við erum að ræða háalvarleg mál, kosningamál.“ 

Sigríður lagði áherslu á að Brynjar hefði beðist afsökunar. „Ég sá ekki betur en hann hefði beðist afsökunar, ég held hann hafi beðið hana afsökunar og gert það sjálfur strax í dag þegar hann sá hvaða viðbrögð þessi ummæli vöktu sem maður hlýtur að skilja.“

„Partur af pólitískri umræðu dagsins í dag“

Svandís Svavars­dóttir, þingkona og fram­bjóðandi Vinstri grænna, brást við orðum Sigríðar og sagði að sér þætti með ólíkindum að það þyrfti fjölmiðla­umfjöllun til að Brynjar áttaði sig á því að þarna hefði hann farið mjög hressilega yfir mörk þess sem eðlilegt er, ekki aðeins í pólitískri umræðu heldur í opinberu rými almennt.

Svandís Svav­ars­dóttirþing­kona og fram­bjóð­andi Vinstri grænna

„Og það er einmitt þetta sem #metoo-byltingin gengur út á, þar sem konur stíga fram og segja frá því að þær hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni á furðulegustu stöðum í samfélaginu. Það að við skulum sjá fulltrúa feðra­veldisins fara fram með þessum hætti í beinni útsendingu, það bara sýnir okkur að þessi umræða er sannarlega mikilvæg og þess virði, og hún er partur af pólitískri umræðu dagsins í dag. Þetta sýnir líka að Sjálfstæðis­flokkurinn þarf að skoða sinn málflutning og sína hegðun í þessum mála­flokki.“

Hér greip Sigríður fram í fyrir Svandísi. „Þetta hefur nú ekkert með Sjálfstæðis­flokkinn að gera,“ sagði hún. Sem kunnugt er er Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfsætðisflokksins og gegndi um nokkurra mánaða skeið formennsku í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd fyrir hönd stjórnar­meirihlutans. Hann er í öðru sæti á lista flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður. 

„Afsökunarbeiðni dónans“

Þegar Þórhildur Sunna var innt eftir viðbrögðum sagði hún að ef framkoman hefði verið grín hjá Brynjari væri húmorinn mjög ósmekk­legur. Atvikið og viðbrögð Brynjars væru lýsandi fyrir það sem konur þyrftu sífellt að þola.

„Þetta er auðvitað mjög lýsandi fyrir það sem við lendum ítrekað í, að það sé verið að „gefa okkur undir fótinn“ í gríni… og ef við tökum því ekki nógu vel þá erum við bara alltof tilfinninga­samar.“ Sagði Þórhildur að afsökunar­beiðni Brynjars væri „þessi tíbíska afsökunar­beiðni dónans sem áttar sig ekki á að hann þurfi að taka ábyrgð á eigin gjörðum. Hann segir, ég biðst afsökunar ef ég móðgaði einhvern í stað þess að segja: ég hagaði mér eins og fífl og biðst afsökunar á því.“

„Ef við tökum því ekki nógu vel þá
erum við bara alltof tilfinninga­samar“

Þegar RÚV fjallaði um atvikið á fundinum í dag gerði Brynjar lítið úr málinu og sagði hegðun sína ekki hafa verið óviðeigandi. „Er öll kímnigáfa á þessu landi dauð?“ sagði hann og bætti við: „Ef hún upplifir þetta eitthvað óviðeigandi þá talar hún bara um það við mig og þá biðst ég afsökunar á því, það var auðvitað ekki tilgangurinn. Bara að taka undir það sem hún var að segja. En hún talar bara við mig sjálf, ef menn vilja nota svona lagað í kosningabáráttu þá gera þeir það.“ Jafnframt kvartaði Brynjar undan því að umræðan væri ofstækis­full. 

Segist hafa upplifað ofbeldi

Bjarni Jónsson, framkvæmda­stjóri Siðmenntar, var fundar­stjóri á fundinum þar sem atvikið átti sér stað. Hann lýsir atvikinu með eftir­farandi hætti á Facebook: 

Ég upplifði nokkuð nýtt í gærkveldi sem ég hefði gjarnan vilja vera án. Ég var funda­stjórinn á þessum fundi. Þegar Brynjar spyr hvort hann megi kyssa Steinunni Þóru upplifði ég ofbeldi sem ég hafði hingað til bara lesið um. Kynferðis­lega áreitni með ófyrirleitinni spurningu. Í þeirri stöðu hefði ég líklega átt að bregðast öðruvísi við en ég gerði en sjokkið sem ég upplifði gerði það að verkum að minna varð úr andmælum. Ég eiginlega lamaðist, en það var auðvitað Steinunn Þóra sem varð fyrir ofbeldinu, ekki ég. Konur hafa á undan­förnum vikum opnað fyrir umræðu um marg­víslegt ofbeldi sem þær verða fyrir og það eru karlmenn sem beita því. Ég læt orð Þórdísar Elvu Þorvalds­dóttur úr grein hennar „Áskorun um #stráka­hitting“ vera lokaorðin: „Ég vil að karlar tali sín á milli um hvað þeir, persónu­lega, geti gert til að draga úr ofbeldi gegn konum.“

Skilur að sumum hafi þótt kersknin óviðeigandi

Eftir að málið hafði vakið hörð viðbrögð í fjöl­miðlum og á samfélags­miðlum birti Brynjar eftir­farandi stöðu­uppfærslu á Facebook: 

Hvað maður segir og gerir tekur oftast mið af eigin veruleika. Mér varð á á pólitískum fundi í gær að lýsa yfir ánægju með málflutning Stein­unnar Þóru með því að spyrja hana hvort ég mætti kyssa hana. Með þeim hætti var ég að slá á létta strengi og hélt að öllum væri ljóst að ekkert annað lægi að baki. Hins vegar eftir á að hyggja mátti mér vera ljóst, sérstak­lega í ljósi umræðunnar í samfélaginu, að þetta kynni sumum að finnast óviðeigandi. Þegar ég vissi að Steinunni Þóru hefði fundist þetta óþægilegt hafði ég strax samband við hana og baðst velvirðingar á þessum orðum mínum. Segja má að þessi kerskni hafi verið misheppnuð sem ég biðst velvirðingar á og mun örugglega læra af.

Skömmu seinna birti hann aðra stöðu­uppfærslu og gerði að gamni sínu:

Jæja, maður hefur lagt sitt af mörkum undan­farnar vikur til að útvega efni í Skaupið. Kannski að einhver virði þá viðleitni í kjör­klefanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár