2.000 ljósár á sextíu sekúndum

Þau sem dreymir um að ferðast um geiminn ættu ekki að láta nýtt myndband geimferða­stofnana Banda­ríkjanna og Evrópu framhjá sér fara. Á sextíu sekúndum er boðið upp á 2.000 ljósára ferðalag með hjálp hins magnaða WEBB-sjónauka.

Suðurhringþokan mynduð af WEBB-sjónaukanum í tveimur ólíkum útfærslum.
Suð­ur­hring­þokan mynduð af WEBB-sjón­auk­anum í tveimur ólíkum útfærslum. Mynd: ESA

Þetta er langt ferðalag. En það tekur samt ekki nema eina mínútu. Og þú getur setið heima í stofu á meðan á því stendur. Engu að síður munt þú sjá það sem hinn stórfeng­legi og gríðar­öflugi WEBB-sjónauki hefur myndað í allt að 2.000 ljósára fjarlægð. Þú munt svífa í gegnum stjörnu­þokur, sjá ótal stjörnur og litbrigði, rétt eins og þú sért að keyra í gegnum þétta snjókomu á vetrar­nóttu.

Mynd­bandið er auðvitað rétt aðeins kynning á því sem WEBB-stjörnu­sjónaukanum er mögulegt að gera. Draga okkur lengst út í geim, lengra en nokkru sinni fyrr. Til að búa til mynd­bandið setti Evrópska geimferðar­stofnunin (ESA) saman tugi stakra mynda sem teknar hafa verið með sjón­aukanum svo það er engu líkara en að þú sért að nota hann sjálf.

Hann hefur nú þegar myndað fyrirbæri sem eru mun lengra í burtu en við fáum að kynnast í mynd­bandinu eða í tæplega 5 milljarða ljósára fjarlægð eða líkt og Sævar Helgi Bragason, helsti sérfræðingur okkar í stjörnu­fræðum sagði: Nýtt skeið í stjarnvísindum er hafið með WEBB-sjón­aukanum.

Hér að neðan getur þú horft á mynd­bandið.

Góða ferð!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár