Sævar Helgi um sögulega mynd: Kannski býr einhver þarna?

Þeirra hefur verið beðið með mikilli óþreyju, fyrstu mynda frá hinum magnaða Webb-geim­sjónauka. Til stóð að birta þær opinber­lega í dag en Bandaríkja­forseti gat ekki setið á sér. „Gull­fallegar vetrar­brautir,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Hér er hún! Myndin sem sýnir okkur lengra út í geim en nokkru sinni fyrr.
Hér er hún! Myndin sem sýnir okkur lengra út í geim en nokkru sinni fyrr.

„Söguleg stund! Fyrsta myndin frá Webb-geim­sjónaukanum!“

Það er ekki annað hægt en að smitast af ákefð Sævars Helga Braga­sonar, vísinda­miðlara og fjölmiðla­manns, sem getur vart hamið kæti sína eftir að hafa barið fyrstu myndina sem tekin var með sjónauka sem kenndur er við James Webb og birt var í gær. Það stóð reyndar ekki til að birta myndina og fleiri sem teknar voru af fjarlægum vetrar­brautum fyrr en í dag en Joe Biden Bandaríkja­forseti var líklega álíka uppnuminn og Sævar Helgi og birti eina í gær. Sýnishorn af alheimi.

„Guuuuullfallegar vetrar­brautir, magnaðar upp af þyngdar­linsu!“ skrifar Sævar Helgi á Facebok-síðu sína í gærkvöldi. Hann segir björtu gulhvítu blettina í miðjunni vera þyrping sporvölu­þoka í 4,6 milljarða ljósára fjarlægð sem hafi svo mikinn massa að hún verkar eins og linsa sem magnar upp ljós frá enn fjar­lægari vetrar­brautum (boga­dregnar). „Þetta er skýrasta mynd sem tekin hefur verið af daufustu fyrir­bærum sem sést hafa í alheiminum,“ bendir hann á og segir nýtt skeið í stjarnvísindum hafið.

„Hugsið ykkur!“ heldur hann áfram í ummælum við færslu sína sem margir tjáð sig um. „Þarna er þyrilþoka svipuð þeirri sem við búum í. Kannski býr einhver þarna? Stjörnur á himninum þeirra jafn strjálar og á nætur­himninum okkar. Og útsýnið þaðan til okkar er svipað því sem við sjáum. Þau sjá okkur eins og við litum út fyrir milljörðum ára. Skyldu þau eiga geim­sjónauka líka?“

Í dag mun veislan halda áfram. Þá verða birtar myndir af Kjalar­þokunni, „stór­glæsilegri stjörnu­verksmiðju í ríflega 7000 ljósára fjarlægð; glæsi­legum hópi vetrar­brauta sem kallast Kvintett Stephans; NGC 3132 (Suður­hringþokunni) sem er leifar dáinnar lágmassa­stjörnu sem svipaði til sólarinnar okkar – og, síðast en ekki síst, fáum litróf af andrúms­lofti fjar­reikistjörnu sem líkist Júpíter,“ skrifar Sævar Helgi.

Við bíðum líka spennt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár