SÁÁ fordæmir hegðun fráfarandi formanns

Framkvæmda­stjórn SÁÁ segist standa með þolendum og boðar umbætur á starfseminni.

Framkvæmda­stjórn SÁÁ sendi rétt í þessu frá sér yfir­lýsingu þar sem fram kemur að hegðun fyrr­verandi formanns samtak­anna sé fordæmd og að framundan sé gagnger skoðun og nauðsynlegar umbætur á öllu starfi samtak­anna. Traust og trúnaður skjólstæðinga, starfs­manna og lands­manna allra sé lykillinn að tilveru SÁÁ. „Undir því trausti viljum við rísa. Við munum ráðast í gagngera skoðun og nauðsynlegar umbætur á öllu okkar starfi og kappkosta að tryggja öryggi skjólstæðinga okkar sem margir eru í viðkvæmri stöðu.“

„Við munum ráð­ast í gagn­gera skoðun og nauð­syn­legar umbætur á öllu okkar starfi“
Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ

Stundin greindi frá því í gær að Einar Hermannsson hefði keypt vændi af konu sem glímdi við vímuefna­vanda á árunum 2016 til 2018, þegar hann sat í framkvæmda­stjórn SÁÁ. Þegar hann fór í framboð til formanns sumarið 2020 ætlaði konan að leggja fram kæru á hendur honum vegna vændis­kaupa, sem er brot á hegningar­lögum, en guggnaði á því. Hún óttaðist að falla vegna álagsins sem fylgdi því að leggja fram kæru. 

Var skjólstæðingur SÁÁ

„Ég var hræðilega veik,“ sagði konan um stöðu sína þegar Einar keypti af henni vændi, en hún hafði glímt við illvígan sjúkdóm og leiðst út í neyslu fíkniefna, sem hún fjár­magnaði með vændi. Konan var skjólstæðingur SÁÁ og óaði við tilhugsuninni um að vændis­kaupandi gæti orðið æðsti stjórn­andi samtak­anna. Þegar fjallað var um kröfu Sjúkra­trygginga Íslands á hendur SÁÁ hafði konan samband við Stundina til þess að segja sögu sína, því henni varð óglatt að sjá manninn koma fram í fjöl­miðlum fyrir hönd samtak­anna.  

Á sama tíma hafði heilbrigðis­starfsmaður samband við starfs­mann Embættis land­læknis til að spyrjast fyrir vegna þess að skjólstæðingur hans hafði trúað honum fyrir vændis­kaupum Einars. Þegar konan hætti við að leggja fram kæru á hendur Einari ákvað heilbrigðis­starfs­maðurinn að fylgja málinu ekki eftir gagnvart Land­læknis­embættinu með formlegri tilkynningu.

Brást við fyrirhugaðri umfjöllun 

Einn stjórnar­meðlimur SÁÁ var sömuleiðis upplýstur um vændis­kaupin á svipuðum tíma en aðhafðist ekki. Það var ekki fyrr en Stundin hafði spurst fyrir um málið í síðustu viku sem málið barst framkvæmda­stjórn SÁÁ til eyrna og það var tekið fyrir á fundi sem leiddi til afsagnar formannsins.

„Ég iðr­ast að hafa farið þessa leið og að hafa valdið fjöl­skyldu minni sárs­auka“
Einar Her­manns­son
Frá­far­andi for­maður SÁÁ

Einar sendi af því tilefni frá sér yfir­lýsingu þar sem hann kvaðst hafa svarað auglýsingu þar sem kynlíf var boðið gegn greiðslu, en gögn sýna hann hafa samband við konuna að fyrra bragði, semja við hana um vændis­kaup, boða komu sína á næstu tíu mínútum og þakka fyrir samskiptin um einum og hálfum tíma síðar. Í yfir­lýsingunni sagði hann sagði umfjöllun um málið kasta rýrð á samtökin ogsagðist iðrast þess að hafa valdið fjöl­skyldu sinni sársauka með framferði sínu. „Ég iðrast að hafa farið þessa leið og að hafa valdið fjöl­skyldu minni sársauka vegna hegðunar minnar. Bið ég alla þá sem málið varðar afsökunar á framferði mínu.“

Boða til aðalfundar

Vara­formaður SÁÁ er Sigurður Friðriksson, en greint hefur verið frá því að hann hafi ekki tekið við störfum formanns vegna veikinda af völdum Covid-19 veirunnar.

Framkvæmda­stjórn SÁÁ mun boða til fundar í aðal­stjórn SÁÁ föstu­daginn 28. janúar næst­komandi kl. 17.15 til að kjósa nýjan formann samtak­anna.

„Umfram allt stöndum við með þolendum“
Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ

 „Umfram allt stöndum við með þolendum,“ segir í yfir­lýsingu frá framkvæmda­stjórn SÁÁ. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Var það ekki þessi gaur og hanns vinir sem settu mest út á Þórarinn Tyrfingsson ? Nú verður gerður FEITUR starfslokasamningur.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    En verður einstaklingnum sem vissi af svívirðunni í stjórnini boðið að bæta ráðsitt líkt og ferju Skipstjóranum í Eyjum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár