Tæpur helmingur treystir Drífu best til að leiða ASÍ – Sagði af sér fyrir níu dögum

Á meðal þeirra sem stóðu að könnun á því hverjum almenningur treystir best til að leiða ASÍ er fyrr­verandi mótfram­bjóð­andi Sólveigar Önnu Jóns­dóttur um formennsku í Eflingu. Rúmur fimmtungur vill sjá Ragnar Þór Ingólfsson sem forseta.

Drífa Snædal, fyrrverandi forseti ASÍ.
Drífa Snædal, fyrr­ver­andi for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Alls sögðust 49,4 prósent aðspurðra í nýrri könnun Gallup, sem framkvæmd var dagana 4. til 15. ágúst, að þeir treystu Drífu Snædal best til að leiða Alþýðu­samband Íslands (ASÍ) næstu tvö árin. Á meðan að á könnuninni stóð, nánar tiltekið 10. ágúst, sagði Drífa af sér sem forseti ASÍ og bar fyrir sig óbærileg átök innan sambandsins, sérstak­lega við forsvars­menn stærstu stéttar­félaga landsins, VR og Eflingar.

Greint er frá niður­stöðu könnunarinnar á forsíðu Frétta­blaðsins í dag en Kjarninn sagði frá því sama dag og Drífa sagði af sér að slík könnun stæði yfir. Í henni var spurt hverjum svarendur treystu best til að leiða ASÍ næstu tvö árin, en kosið verður um forseta sambandsins á þingi ASÍ í október.

Val­kost­irnir sem boðið var upp á voru fimm: Drífa Snædal, Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Krist­ján Þórður Snæ­björns­son, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands.

Mótframbjóðandi Sólveigar Önnu á bakvið könnunina

Á þeim tíma lá ekki fyrir hver hafði keypt spurninguna og látið spyrja hana í spurninga­vagni Gallup. Í Frétta­blaðinu í dag kemur fram að það sé hópur sem kallar sig „áhugafólk um málefni verkalýðs­hreyfingarinnar. Forsvars­maður hópsins er Ólöf Helga Adolfs­dóttir, ritari stjórnar Eflingar og fyrr­verandi vara­formaður félagsins, sem staðið hefur í miklum deilum við Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, formann Eflingar, og stuðnings­fólk hennar undan­farin misseri. Þær leiddu sitt hvorn framboðs­listann í stjórnar­kjöri í Eflingu í febrúar, þar sem listi Sólveigar Önnu bar sigur úr býtum. Hann fékk 52 prósent atkvæða á meðan að listi Ólafar Helgu fékk 37 prósent.

Haft er eftir Ólöfu Helgu í Frétta­blaðinu í dag að hópurinn sem hún tilheyrir hafi viljað sjá hver staðan væri nú hvað varðar traust til forystu ASÍ. „Mér persónu­lega finnst Drífa njóta mikils trausts og það er kannski eitthvað sem manni fannst ekki heyrast mikið í umfjölluninni.“

Fáir treysta starfandi forseta

Enginn hefur tilkynnt um framboð til forseta ASÍ sem stendur þótt Kristján Þórður Snæbjörnsson, starfandi forseti og formaður Rafiðnaðar­sambands Íslands, hafi sagt að hann útiloki það ekki. Í könnuninni sögðust 5,7 prósent aðspurðra treysta honum best til að leiða ASÍ næstu tvö árin.

Sá sem fékk næst mestan stuðning í það hlutverk, á eftir Drífu, var Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og einn þeirra sem Drífa hefur nefnt sem ástæðu þess að hún sagði af sér embætti. Alls sögðust 20,9 prósent aðspurðra að þeir treystu Ragnari Þór best til að leiða ASÍ. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfs­greina­sambands Íslands og formaður Verkalýðs­félags Akraness, var nefndur af 17,9 prósent svarenda og 6,1 prósent nefndi nafn Sólveigar Önnu.

Sólveig Anna gerir upp átökin í ASÍ um þessar mundir í greinar­flokki sem birtist á Kjarnanum. Hún hefur þegar birt tvær greinar af fjórum. Þriðja grein hennar birtist á morgun, laugardag.

Í umfjöllun Frétta­blaðsins segir að nánast engir kjósendur Framsóknar­flokksins og Sjálfstæðis­flokksins hafi sagst treysta Sólveigu Önnu. Hún hafi hins vegar notið meiri stuðnings á meðal kjósenda Pírata, Sósíalista­flokks Íslands og Flokks fólksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár