Sólveig Anna segir uppsögn Drífu tímabæra og að hún hafi myndað blokk með efri millistétt

Formaður Eflingar segir uppruna, bakland og stuðnings­hópa Drífu Snædal hafa verið í stofnana-pólitík og í íhaldsarmi verkalýðs­hreyfingarinnar. Vinnu­brögð hennar hafi verið lokuð, andlýð­ræð­isleg og vakið gagnrýni, langt út fyrir raðir VR og Eflingar.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, segir að það sé leitt að Drífa Snædal, fráfar­andi forseti Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ), hafi notað tækifærið „um leið og hún tilkynnti tímabæra afsögn sína, til að hnýta með ómálefnalegum hætti í mig og stjórn Eflingar.“ Drífa viti sjálf að það sé langt um liðið síðan grafa fór undan trúverðug­leika hennar og stuðningi í baklandi verkalýðs­hreyfingarinnar. „Það hefur ekkert með innri mál Eflingar að gera, þó svo að Drífa hafi ákveðið að blanda sér í þau, huganlega vegna þess að hún hélt að það yrði sér til fram­dráttar þegar hún sá sitt pólitíska stunda­glas tæmast.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í færslu sem Sólveig Anna birti á Facebook í dag.

Drífa tilkynnti um afsögn sína í morgun og sagði að átök innan sambandsins hafi verið óbærileg. „Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttar­félaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið.“ Þar vísaði hún til Eflingar og VR, stærstu stéttar­félaga Íslands.

Segir Drífu hafa lokað sig inni í blokk með efri millistétt

Í færslu Sólveigar Önnu segir hún Drífu hafa talað um blokka­myndun innan hreyfingarinnar. „Staðreyndin er sú að Drífa kaus sjálf að loka sig inni í blokk með nánasta samstarfs­fólki forvera síns, Gylfa Arnbjörnsonnar, og þeirri stétt sérfræðinga og efri milli­stéttar­fólks sem ræður ríkjum í stofnunum ríkis­valdsins á Íslandi og einnig á skrif­stofum Alþýðu­sambandsins. Uppruni, bakland og stuðnings­hópar Drífu voru í stofnana-pólitík og í íhaldsarmi verkalýðs­hreyfingarinnar, hjá fólki eins og Halldóru Sveins­dóttur formanni Bárunnar. Drífa gat aldrei stutt við það umbreytinga­verkefni og endurnýjun sem ég, Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson höfum leitt með stuðningi mikils fjölda félags­fólks í okkar félögum um land allt. Það er staðreynd.“

Formaður Eflingar gerir einnig athugasemd við full­yrðingu Drífu talar um að hún hafi aldrei vílað fyrir sér að „taka slaginn" gagnvart stjórn­völdum. „Því miður er það ekki rétt eins og fjöldi dæma sýnir. Drífa Snædal vildi semja við ríkis­stjórnina og SA um að hafa af verka- og láglaunafólki umsamdar launa­hækkanir í kóróna­veiru­kreppunni. Og það hefði orðið raunin ef ekki hefði verið fyrir andstöðu Eflingar. Drífa vildi heldur ekki "taka slaginn" þegar Icelandair braut lög um stéttar­félög og vinnu­deilur til að nauð­beygja flug­freyjur í miðri kjara­deilu - hún stöðvaði málssókn fyrir Félags­dómi og undir­ritaði þess í stað skammar­lega hvítþvottar­yfirlýsingu. Drífa tók heldur ekki slaginn um viðurlög gegn launa­þjófnaði, heldur reyndi í tvígang að bera á borð fyrir aðildar­félög ASÍ handónýta laga­setningu þar sem staða fórnar­lamba launa­þjófnaðar hefði orðið verri en hún er nú.“

Segir Drífu hafa samið við ríkisstjórnina í skjóli nætur

Þá segir Sólveig Anna að Drífa hafi samið, í skjóli nætur, við ríkis­stjórnina vorið 2019 um að neyða vinnandi fólk inn í nýja útgáfu af Salek-samkomu­laginu svokallaða, sem þá hefði verið kallað Grænbók. „Einu gilti þótt að verkafólk á Íslandi hafi marg­ítrekað hafnað Salek-hugmynda­fræðinni. Ef ekki hefði verið fyrir andstöðu Eflingar­félaga og breytinga­aflanna innan verkalýðs­hreyfingarinnar hefði Grænbókarvinnnan haldið áfram, og við værum grafin enn dýpra en við erum nú þegar í fen sérfræðinga­veldis Þjóð­hagsráðs - en það var einmitt síðasta verk Drífu í fréttum í gær að taka upp hanskann fyrir Þjóð­hagsráð.“

Hún segir vinnu­brögð Drífu hafa verið lokuð, andlýðræðisleg og iðulega vakið undrun og gagnrýni, langt út fyrir raðir VR og Eflingar. Í málefnum vinnu­markaðarins hafi nánustu félagar Drífu verið formenn BSRB og BHM. Hún hefði ekki haft áhuga á að hlusta á raddir forystu stærstu félaganna innan vébanda ASÍ. „Alþýðu­sambandinu undir stjórn Drífu Snædal mistókst með öllu að laga áherslur og starf sambandsins að þeim miklu breytingum sem urðu í stærstu aðildar­félögum sambandsins á árunum 2017-2018 og standa ennþá yfir. Leiðtogar eiga að hlusta á vilja þeirra sem þeir eiga umboð sitt undir. Það hefði Drífa Snædal getað gert á fyrri stigum en kaus að gera ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár