Drífa Snædal segir af sér embætti forseta ASÍ

Forseti ASÍ segir að átök innan sambandsins hafi verið óbærileg og dregið úr vinnu­gleði og baráttu­anda. „Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttar­félaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið.“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, forseti Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ), hefur ákveðið að segja af sér embætti og öllum trúnaðar­störfum sem hún hefur gegnt sem forseti. Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook.

Þar segir Drífa að fyrir ákvörðun sinni séu nokkrar ástæður. „Þing ASÍ er í byrjun október og ég þurfti að gera það upp við mig hvort ég gæfi áfram kost á mér. Þegar ég hugsaði málið varð niður­staða mín sú að ég treysti mér ekki til að starfa áfram yrði ég til þess kjörin og af því leiddi að það væri skynsamlegt í ljósi kjara­viðræðna og undir­búning þingsins að hætta sem fyrst. Ég veit að ég nýt mikils stuðnings félaga og í samfélaginu og fyrir það er ég þakklát. Það eru hins vegar samskipti við ýmsa kjörna fulltrúa innan sambandsins og sú blokka­myndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem forseti ASÍ.“

Átök innan ASÍ óbærileg

Drífa segir í færslunni að hún hafi ekki vílað fyrir sér að taka slaginn fyrir launafólk gagnvart stjórn­völdum eða atvinnu­rekendum enda sé það hluti af því að vera í verkalýðs­baráttu. „Átök innan ASÍ hafa hins vegar verið óbærileg og dregið úr vinnu­gleði og baráttu­anda. Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttar­félaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið. Ég treysti mér ekki til að vinna með fólki sem ég á ekki samleið með í barátt­unni. Og ég hef sem forseti verið í þeirri stöðu sem ég ætlaði mér aldrei; að telja mig ekki eiga annars kost en að gagnrýna stjórnar­ákvarðanir og formenn stærstu stéttar­félaga innan ASÍ.“

Gagnrýnir forystu Eflingar og VR

Hún nefnir sérstak­lega ákvörðun stjórnar Eflingar, næst stærsta stéttar­félags landsins, um að standa fyrir hópuppsögn á skrif­stofu félagsins sem Drífa sá sig knúna til að mótmæla. „Ég þurfti einnig að bregðast við linnulausri, en óljósri gagnrýni formanns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í samskiptum hvert við annað innan hreyfingarinnar er henni ekki til fram­dráttar og félögum ekki til hagsbóta.“

Að mati Drífu er verkalýðs­hreyfingin ein merkilegasta mann­réttinda­hreyfing heims og hún segir hjarta sitt hafa slegið þar og muni gera það áfram. „Ég get hins vegar ekki sinnt störfum mínum lengur sem forseti ASÍ. Þá er hreinlegast að segja þetta gott. Og til að taka af allan vafa er þetta ekki hluti af einhverri stærri fléttu, ég einfald­lega hverf af þessum vettvangi án þess að hyggja á endurkomu.“

Kannað hverjum sé best treystandi fyrir ASÍ

Ljóst er að undir­búningur fyrir þing ASÍ í október er hafinn og heimildir Kjarnans herma að byrjað hafi verið að kanna mótframboð gegn Drífu fyrir nokkuð löngu síðan. Í síðustu viku sendi Gallup út könnun þar sem spurt var sérstak­lega um hverjum svarendur treystu best fyrir því að leiða ASÍ næstu tvö árin. Fyrir liggur að einhver hefur keypt þá spurningu og látið spyrja hana í spurninga­vagni Gallup.

Valkostirnir sem boðið var upp á voru fimm: Drífa Snædal, Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfs­greina­sambandsins og Kristján Þórður Snæbjörnsson, formaður framkvæmda­stjórnar Rafiðnaðar­sambands Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár