Eignir íslensku lífeyrissjóðanna skruppu saman um 141 milljarð á einum mánuði

Á meðan að kórónu­veiru­faraldurinn tröllreið heiminum jukust eignir íslenskra lífeyris­sjóða um 36 prósent. Virði þeirra náði hámarki um síðustu áramót. Síðan þá hafa þær lækkað um tæp fimm prósent, eða 326 milljarða króna.

Virði íslenskra hlutabréfa hefur lækkað umtalsvert það sem af er ári. Það bítur lífeyrissjóði landsins, sem eiga um helming þeirra beint eða óbeint, fast.
Virði íslenskra hluta­bréfa hefur lækkað umtals­vert það sem af er ári. Það bítur líf­eyr­is­sjóði lands­ins, sem eiga um helm­ing þeirra beint eða óbeint, fast. Mynd: Reitir

Eignir lífeyris­sjóðanna voru 6.747 milljarðar króna um síðustu áramót, og höfðu aldrei verið meiri. Á meðan að kórónu­veiru­faraldurinn geisaði, og hlutabréfa­verð hækkaði gríðar­lega um allan heim, og út árið 2021 jukust eignir sjóðanna um 1.791 milljarð króna, eða um 36 prósent. Hluti þeirrar aukningar var tilkominn vegna inngreiðslna sjóðs­félaga en lang­stærsti hluti hennar var vegna þess að fjár­festingar, aðallega hlutabréf, hækkuðu í virði. Heildar­vísitala skráðra hluta­bréfa á Íslandi hækkaði til að mynda um 24,3 prósent 2020 og um 40,2 prósent í fyrra. Íslenskir lífeyris­sjóðir eru lang­stærstu eigendur slíkra bréfa, og eiga um helming þeirra beint eða óbeint.

Hækkunin var drifin áfram af ódýru lánsfé og auknum sparnaði lands­manna, en ekki undir­liggjandi frammistöðu félaganna á markaði. Því bar hún öll merki bólu. Margir bjuggust því við leið­réttingu á virði skráðra hluta­bréfa.

Á þessu ári hefur virði hluta­bréfa enda fallið allstaðar í heiminum samhliða því að Rússar réðust inn í Úkraínu, verðbólga fór að hækka skarpt og seðla­bankar heimsins hófu að hækka stýri­vexti, sem gerði lánsfé dýrara.

Þessi staða hefur haft neikvæð áhrif á eignir lífeyris­sjóðanna.

Fallandi hlutabréfaverð lykilbreyta

Það sem af er þessu ári hefur úrvals­vísitala Kaup­hallar Íslands, sem er samansett úr gengi bréfa þeirra tíu félaga sem hafa mestan seljanleika, lækkað hratt, eða um 21,2 prósent. Kjarninn greindi frá því í byrjun síðasta mánaðar að hún hefði lækkað um 10,9 prósent í maímánuði einum saman. Það er mesta lækkun innan mánaðar síðan í maí 2010, eða í tólf ár. Lækkun á virði bréfa í Marel, lang­verðmætasta skráða félagsins á íslenskum hlutabréfa­markaði, hefur leitt þessa þróun.

Í lok maí voru heildar­eignir íslenskra lífeyris­sjóða metnar á 6.421 milljarð króna. Frá áramótum hafa þær lækkað um 326 milljarða króna, eða um 4,8 prósent. Í maí einum saman lækkuðu þær um 141 milljarð króna. Þetta kemur fram í nýjum hagtölum sem Seðla­banki Íslands birti í gær.

Mest lækkuðu innlendu eignirnar í mánuðinum, eða um 81,5 milljarða króna. Þær voru 4.334 milljarðar króna í lok maí. Innlendu eignirnar hafa þó aukist lítillega það sem af er ári. Virði innlendra hluta­bréfa og hlutdeildar­skírteina í sjóðum sem fjárfesta í slíkum hluta­bréfum var 1.068 milljarðar króna í lok maí. Virði þeirra dróst saman um 55,6 milljarða króna á fyrstu fimm mánuðum ársins.

Frá áramótum eru það erlendu eignirnar sem hafa lækkað mest. Þær voru 2.246 milljarðar króna þegar landsmenn sprengdu nýja árið inn en 2.087 milljarðar króna í maí. Erlendu eignir lífeyris­sjóðanna hafa því lækkað um 159 milljarða króna frá lok síðasta árs.

Fallandi hlutabréfa­verð leikur þar lykil­hlutverk. Virði erlendra hluta­bréfa og hlutdeildar­skírteina íslenskra lífeyris­sjóða hefur skroppið saman um 165 milljarða króna það sem af er ári.

Farnir að kitla þakið

Alls eru um 67,5 prósent eigna lífeyris­sjóðanna innlendar eignir. Hlut­fallið hefur hækkað vegna þess verðfalls sem orðið hefur á erlendu eignunum, en auk hluta­bréfa samanstendur innlenda eignin að uppistöðu af skulda­bréfum og lánum sem sjóðirnir hafa veitt sjóðs­félögum til húsnæðis­kaupa.

Um liðin áramót voru erlendu eignirnar orðnar tæplega 36 prósent af heildar­eignum sjóðanna en það hlutfall hefur nú fallið niður í 32,5 prósent. Þær hafa þó nánast tvöfaldast í krónum talið á rúmum þremur árum.

Samkvæmt gildandi lögum hafa lífeyris­sjóðirnir heimild til að vera með 50 prósent eigna sinna erlendis. Þeir hafa lengi kallað eftir að þetta hlutfall verði hækkað þar sem nokkrir sjóðir eru komnir ískyggilega nálægt hámarkinu. Í vor voru tíu líf­eyr­is­­sjóðir komnir með hlut­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­sent af heild­­ar­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­fallið yfir 40 pró­­sent og einn, Líf­eyr­is­­sjóður verzl­un­ar­manna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­sent. Sjóð­irnir þorðu illa að fara með hlut­­fallið hærra þar sem skynd­i­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­legt hámark.

Frumvarp sem þótti ekki ganga nógu langt ekki afgreitt fyrir þinglok

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, lagði fram frumvarp fyrr á þessu ári sem rýmka átti heimildir lífeyris­sjóða til að fjárfesta erlendis.

Þegar drög að frum­varp­inu voru kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda stóð til að hlut­fallið myndi hækka um eitt pró­­sent­u­­stig á ári frá byrjun árs 2024 og til loka 2038. Heim­ildin yrði þá 65 pró­­sent í lok þess árs.

Í umsögn Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða um drögin kom fram að djúp­stæð óánægja væri meðal full­trúa þeirra sjóða sem væru þegar komnir nálægt núgild­andi þaki með hvers hægt ætti að rýmka heim­ild­irn­ar. Kallað var eftir því að hækka heim­ild­ina strax um næstu ára­­mót og hækka hana um tvö til þrjú pró­­sent­u­­stig á ári þangað til að 65 pró­­sent mark­inu yrði náð. Ef farið yrði að ítr­­ustu kröfum sjóð­anna myndi það tak­­mark nást í árs­­lok 2027 að óbreytt­u.

Í frum­varp­inu eins og það var lagt fram á Alþingi var gerð sú breyt­ing að á árinum 2024, 2025 og 2026 yrði heim­ild sjóð­anna í erlendum eignum hækkuð um 1,5 pró­sentu­stig á ári og yrði þannig 54,5 pró­sent í lok síð­asta árs­ins. Eftir það ætti hámarkið að aukast um eitt pró­sentu­stig á ári þar til það nær 65 pró­sentum í byrjun árs 2036. Í frum­varp­inu stóð enn fremur að ráð­herra ætti í síð­asta lagi á árinu 2027 að leggja mat á hvort til­efni sé til að leggja til aðrar breyt­ing­ar.

Frum­varpið var ekki afgreitt fyrir þinglok. Búist er við því að það verði tekið til afgreiðslu snemma á næsta þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár