Birgir segir að íslenska ríkið þurfi að greiða bætur

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafn­aði kröfu um bætur frá íslenska rík­inu en þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir ríkið bóta­skylt.

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu engu breyta um stöðu Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra og hafnar því að starf Lands­réttar sé í upp­námi. Þetta kemur fram í við­tali við hann á RÚV.is. 

Lands­réttur hefur ákveðið að fresta dóms­málum sem hinir ólög­lega skip­uðu fjór­menn­ingar dæma í út vik­una. Með dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu liggur fyrir að íslenska ríkið hefur brotið gegn rétti fjölda dóm­þola til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir óhlut­drægum og sjálf­stæðum dómi. 

Birgir full­yrðir þó að dóm­ur­inn hafi „ekki bind­andi nið­ur­stöðu nema að því leyti að íslenska ríkið þarf að borga bætur.“ Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins er þó kröf­unni um bætur hafnað. Hins vegar er 15 þús­und evra máls­kostn­aður felldur á ríkið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Landsréttarmálið

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár