Bjarni fór rangt með þegar hann reyndi að útskýra fátæktartölur fyrir Ingu Sæland

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hélt að Inga Sæland væri að vísa til tekju­viðmiða og afstæðrar fátæktar. „Mér finnst það ekki lýsa þeim raun­veruleika sem blasir við mér í íslensku samfélagi,“ sagði hann um lýsingu Ingu á niður­stöðum Unicef.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, gagnrýndi Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, fyrir að nota orðið örbirgð þegar hún vísaði til þeirrar niður­stöðu Unicef á Íslandi frá því í fyrra að um 10 prósent barna á Íslandi líði efnis­legan skort. „Mér finnst það ekki lýsa þeim raun­veruleika sem blasir við mér í íslensku samfélagi,“ sagði hann í sérstakri umræðu um fátækt á Íslandi í gær.

Þegar Bjarni gerði athuga­semdir við málflutning Ingu Sæland fór hann sjálfur með rangt mál um tölurnar sem hún hafði vísað til í ræðu sinni.

Inga Sæland átti frumkvæði að umræðunni um fátækt og hóf mál sitt með því að vitna til umræddrar skýrslu UNICEF. „Það er enn þá nokkuð ljóst að um 10% barna okkar líða skort. Samkvæmt skýrslu UNICEF á Íslandi sem kom út í janúar 2016 líða 9,1% barna hér mismikinn skort, bæði félags­legan og efnis­legan,“ sagði hún. „Er hæstvirtur ráðherra sáttur við þá örbirgð sem tæplega 10% íslenskra barna búa við?“

Í skýrslu Unicef er byggt á svörum úr lífskjara­rannsókn Hagstofunnar og þau greind út frá sérstakri aðferða­fræði sem er ætlað að varpa ljósi á marghliða skort meðal barna á Íslandi. Niður­staðan er sú að hlutfall þeirra barna sem líða skort á Íslandi hafi rúmlega tvöfaldast frá árinu 2009. Gera megi ráð fyrir að á árinu 2014 hafi rúmlega 6100 börn liðið efnis­legan skort og tæplega 1600 börn búið við verulegan skort.

„Mér finnst það ekki lýsa þeim raun­veruleika
sem blasir við mér í íslensku samfélagi“

„Ég verð að byrja á að segja að ég hef fyrirvara við þá full­yrðingu sem er í þessari spurningu, þ.e. að 10% íslenskra barna búi við örbirgð. Mér finnst það ekki lýsa þeim raun­veruleika sem blasir við mér í íslensku samfélagi,“ sagði Bjarni í umræðunum í gær. 

Hélt að Inga væri að vísa til afstæðrar fátæktar

Hann fullyrti að í tölunum sem Inga vísaði til væri byggt á tekju­viðmiðum „þar sem við skoðum meðal­tekjur og síðan könnum við hversu margir eru með 60% eða minna af meðal­tekjunum þar sem við skoðum meðal­tekjur og síðan könnum við hversu margir eru með 60% eða minna af meðal­tekjunum, þannig að þarna erum við að tala um hlutfalls­lega stöðu gagnvart öðrum hópum“.

Hið rétta er að í skýrslu Unicef er efnis­legur skortur ekki greindur út frá tekjum heimila heldur með aðferð sem byggir á nálgun Eurostat við mælingar á skorti heimila á efnis­legum gæðum og er notuð af rann­sakendum á vegum rannsóknar­stofnunar UNICEF. Þar er kannaður skortur á sjö sviðum; á sviði næringar, menntunar, klæðnaðar, upplýsinga, húsnæðis, afþreyingar og félags­lífs, og teljast börn líða skort ef þau skortir tvennt eða fleira af lista lífskjara­rannsóknar Evrópu­sambandsins.

Tilraun Bjarna til að leiðrétta Ingu Sæland var þannig á misskilningi byggð. Hann virðist hafa haldið að Inga væri að vísa til mælinga á því sem kallast afstæð fátækt, þegar hún vitnaði skýrt í skort­greiningu Unicef sem byggir á aðferða­fræðinni sem er reifuð hér að ofan og myndirnar hér varpa nokkru ljósi á. 

„Það er of langt gengið að segja hreinlega að þeir sem falla undir þann hóp hlutfalls­lega gagnvart öðrum búi við aðstæður sem væri hægt að lýsa sem örbirgð. Það finnst mér bara of langt gengið,“ sagði Bjarni sem tók þó fram að það væri mikilvægt að halda því til haga að mörg börn á Íslandi liðu verulegan efnis­legan skort.

„En ég kalla eftir því að við notum þá
tölurnar sem eru byggðar á rann­sóknum“

„Ég vil bara fagna því að hafa fengið öflugan talsmann eins og þann sem hér hefur opnað umræðuna inn á þing til að halda stjórn­völdum við efnið og koma inn með þá reynslu og þekkingu sem hv. þingmaður hefur inn í þennan málaflokk. En ég kalla eftir því að við notum þá tölurnar sem eru byggðar á rann­sóknum. Þar erum við að tala um að um 2% barna búi á Íslandi á heimilum þar sem verulegur skortur er á efnis­legum gæðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár