RÚV tekur til sín fjórðung allra tekna fjölmiðla og helming auglýsingatekna

Notenda­tekjur fjölmiðla hafa vaxið umtals­vert á síðustu árum en auglýsinga­tekjur þeirra hafa dregist saman. Þar skiptir innkoma erlendra samfé­lags­miðl­arisa lykilmáli, en þeir taka til sín 43,2 prósent allra auglýsinga­tekna á Íslandi.

Alls námu tekjur allra fjölmiðla á Íslandi 27 milljörðum króna í fyrra. Á föstu verðlagi er það sama upphæð og þeir þénuðu árið 2015, en 13 prósent minni tekjur en miðlarnir höfðu samanlagt árið 2005. Inni í þessum tölum eru þær tekjur sem Ríkis­útvarpið tekur til sín, en það var með 25 prósent hlutdeild í fjölmiðla­tekjum á síðasta ári. Þar af tekur RÚV til sín helming allra auglýsinga­tekna í sjónvarpi og 39 prósent allra auglýsinga­tekna í hljóð­varpi. Hlutdeild þess af auglýsinga­kökunni fyrir sjónvarp og útvarp óx milli ára.

Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í síðustu viku um tekjur innlendra fjölmiðla.

Tölur Hagstofunnar sýna að miklar breytingar hafa orðið á tekjum miðla eftir tegund á þessari öld. Í upphafi hennar voru dagblöð og vikublöð mjög sterk og árið 2005 voru tekjur þeirra um 62 prósent meiri en þær voru í fyrra. Svipaða sögu er að segja af öðrum blöðum og tímaritum en tekjur þeirra hafa dregist saman um 50 prósent á þessum 16 árum. Á sama tíma hafa tekjur hljóð­varpa aukist um tíu prósent á föstu verðlagi og tekjur sjónvarps um 19 prósent. Mesta aukningin hefur þó orðið hjá vefmiðlum sem þénuðu 336 milljónir króna á verðlagi síðasta árs árið 2005 en 2.586 milljónir króna á árinu 2021. Það er næstum áttföldum á tekjum vefmiðla á sextán árum. Vefmiðlar juku tekjur sínar hlutfalls­lega mest milli 2020 og 2021.

Notendatekjur aukist en auglýsingatekjur dregist saman

Stærstur hluti tekna fjölmiðla, alls 16,1 milljarður króna í fyrra, kemur frá notendum eða 60 prósent. Þar munar mestu um þau notenda­gjöld sem renna til RÚV, en ríkis­miðillinn fékk tæplega 4,7 milljarða króna úr ríkis­sjóði á árinu 2021. Á næsta ári, 2023, gera fjárlög ráð fyrir að RÚV fái 5,7 milljarða króna úr sameiginlegum sjóðum. Ofan á það framlag sækir RÚV um tvo milljarða króna á ári í auglýsinga­tekjur. Hlutur RÚV í öllum fjölmiðla­tekjum hefur farið vaxandi á undan­förnum. Hann var 22 prósent árið 2015 en 25 prósent í fyrra.

Staðan raunar breyst ansi hratt á síðustu sex árum. Árið 2015 voru tekjur fjölmiðla vegna greiðslna frá notendum ellefu prósent lægri á föstu verðlagi en þær voru á síðasta ári. Auglýsinga­tekjurnar þá voru hins vegar 16 prósent hærra þá en þeir eru nú. Ef farið er lengra aftur í tímann, til 2005, hafa auglýsinga­tekjur innlendra fjölmiðla dregist saman um 54 prósent.

Fimm stærstu fjöl­miðlar landsins taka til sín 87 prósent af tekjum þegar RÚV er talið með. Því skiptast 13 prósent tekna á aðra fjölmiðla í landinu en á þessu ári fengu alls 25 einka­reknir fjöl­miðlar rekstrar­styrk úr ríkis­sjóði.

Facebook og Google ryksuga upp auglýsingatekjur

Hagstofan greindi frá því snemma í desember að erlendir miðlar hafi tekið til sín 43,2 prósent af öllum auglýsinga­sölutekjum á Íslandi á síðasta ári. Það þýðir að 9,5 af 22 milljörðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa á árinu 2021 fór til erlendra aðila.

Þessir erlendu aðilar eru aðal­lega Google og Facebook, en hlutur þess­ara tveggja alþjóð­legu stór­fyr­ir­tækja í greiðslu­korta­við­skiptum vegna þjón­ustu­inn­flutn­ings vegna aug­lýs­inga var 95 pró­sent á síð­asta ári.

Hlutur þess­ara aðila í greiðslum vegna birtinga aug­lýs­inga hefur farið hratt vax­andi síð­ustu ár og tvö­fald­ast á ein­ungis átta árum, en á föstu verð­lagi fóru fimm millj­arðar króna til erlendra aðila árið 2013 og, líkt og áður sagði, 9,5 millj­arðar króna í fyrra. Vöxt­ur­inn á milli áranna 2020 og 2021 nam 34 pró­sent­um.

100 milljónirnar fara í styrkjakerfið

Undan­farin ár hefur verið greiddur rekstrar­styrkur til einka­rekinna fjölmiðla sem uppfylla ákveðin skilyrði. Í honum felst að hlutfall af ritstjórnar­kostnaði þeirra er endur­greiddur. Styrkja­kerfið rennur út um komandi áramót en fyrir þingi liggur frumvarp um að lengja það til tveggja ára. Búist er við að það frumvarp verði afgreitt fljótlega eftir jól.

Samkvæmt fjárlögum eru 377 milljónir króna ætlaðar í þessa rekstrar­styrki. Í fyrra fór alls 53 prósent upphæðarinnar til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­­­­urs, Sýnar og Torgs, en hvert þeirra fékk 66,7 millj­ónir króna.

Fjölmiðla­fyrirtækið N4, sem rekur ekki frétta­stofu en fram­leiðir ýmis konar efni, óskaði í desember eftir því að fá 100 milljón króna styrk úr ríkis­sjóði. Fjár­laganefnd samþykkti styrk­veitinguna en nefndar­menn sögðu síðar að hún ætti að skiptast á fleiri sem framleiða sjónvarps­efni á lands­byggðinni. N4 er eina sjónvarps­stöðin á lands­byggðinni.

Eftir að málið rataði í fjölmiðla var ákveðið að breyta úthluta fjár­mununum með öðrum hætti. Í nefndar­áliti fjár­laganefndar fyrir þriðju umræðu fjár­laga­frum­varpsins sagði að í ljósi „umræðu í fjöl­miðlum beinir meiri hlut­inn því til ráð­herra að end­ur­skoða þær reglur sem gilda um rekstr­ar­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á lands­byggð­inni þannig að aukið til­lit verði tekið til þeirra sem fram­leiða efni fyrir sjón­varp.“

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun fjár­fram­lagið renna inn í styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla og hækka þá upp­hæð sem þar verður til úthlut­unar úr 377 millj­ónum króna á næsta ári, í 477 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár