Kveiktu eld í mosku Palestínumanna

Ísraelskir landnemar vanhelga moskur Palestínu­manna. „Lítil sprenging varð sem olli eldsvoða inni í mosku­byggingunni,“ sagði vitni, sem lýsti skyndilegri árás á mosku á hernumdu svæði á Vestur­bakkanum. Ofbeldi gegn Palestínu­mönnum er gjarna án afleiðinga.

Ísraelskir landnemar reyndu að kveikja í mosku í hernumda hluta Vestur­bakkans, að sögn Palestínu­manna. Þetta er nýjasta árásin af þessu tagi á svæðinu.

Palestínska trúmála­ráðuneytið sagði að „hópur landnema hefði reynt að kveikja í hlutum Nur al-Din Zanki-moskunnar“ í Bazzaryah, nærri Nablus, og lýsti atvikinu sem „glæpsamlegri árás“.

Ljós­myndir og myndskeið AFP frá Bazzaryah sýna svört brunaför í kringum glugga á herbergi sem tilheyrir mosku­byggingunni, auk skilaboða með hótunum á hebresku sem skrifuð voru á útveggi moskunnar.

Réðust skyndilega til atlögu

„Um klukkan 2:45 um nóttina réðust land­nemarnir skyndi­lega til atlögu. Lítil sprenging varð sem olli eldsvoða inni í mosku­byggingunni,“ sagði Majed Nasr, sem býr í nágrenninu. Hann bætti við að land­nemarnir hefðu síðan flúið af vettvangi.

„Okkur tókst að ráða niður­lögum eldsins áður en ástandið versnaði og eldurinn náði upp í megin­hluta byggingarinnar,“ sagði hann við AFP.

Ísraelski herinn svaraði ekki þegar …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár