Næturstrætó lagður af því ekki voru 50 í hverjum vagni

Slæm fjárhags­staða Strætó veldur því að ákvörðun var tekin um að hætta keyrslu á nóttunni um helgar. Nýting ferðanna þótti ekki nægjanleg en þó var Hafnar­fjarðar­strætó ekki langt frá væntingum. Vara­formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl undrast að sú leið skuli ekki áfram í boði.

Slæm fjárhagsstaða stór áhrifaþáttur
Slæm fjár­hags­staða stór áhrifa­þáttur Slæm fjár­hags­staða auk nýt­ingar undir vænt­ingum er ástæða þess að næt­ur­strætó var sleg­inn af, segir Jóhannes fram­kvæmda­stjóri Strætó. Mynd: Strætó bs.

Stjórn Strætó hefur ákveðið að akstri nætur­strætós verði hætt. Nýting í ferðum hafi ekki staðið undir væntingum. Á bilinu 14 til 16 farþegar hafi verið í hverri ferð og segir framkvæmda­stjóri Strætó að farþega­fjöldi hefði þurft að ná að minnsta kosti 50 til að vera ásættanlegur. Vara­formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl gagnrýnir ákvörðunina og spyr hví ekki hafi í það minnsta verið haldið áfram að keyra þá leið sem næst komst því að standast væntingar um farþega­tölur, Hafnar­fjarðar­strætó.

Í byrjun júlí síðastliðins ákvað stjórn Strætó að hefja tilrauna­verkefni með akstri nætur­strætós um helgar og átti verkefnið að standa út september­mánuð. Ítrekað hafði verið kallað eftir þessari þjónustu en hún stóð til boða árið 2018 en lagðist í dvala í upphafi Covid-19 faraldursins.

Slæm fjárhagsstaða stærsti orsakaþátturinn

Nú hefur akstur nætur­strætós sem sagt verið sleginn af að nýju þar eð farþega­fjöldi hverrar helgar stóð ekki undir væntingum stjórnar. Um 300 til 340 farþegar tóku nætur­strætó um hverja helgi, að meðaltali 14 til 16 í hverri ferð. Taldi Strætó það talsvert undir ásættanlegum viðmiðum. 

„Svona fimm­tíu manns, að lág­marki“
Jóhannes Svavar Rún­ars­son
fram­kvæmda­stjóri Strætó, um hvað væri ásætt­an­legur far­þega­fjöldi

Spurður hver hefði verið ásættanlegur farþega­fjöldi svarar Jóhannes Svavar Rúnarsson framkvæmda­stjóri: „Ég myndi segja svona yfir fimmtíu prósent nýting af afkasta­getu vagnsins, sem væru þá svona fimmtíu manns, að lágmarki.“

Nú keyrir strætó ferðir yfir daginn og það er ekki alltaf fimmtíu manns í strætó?

„Nei nei, það er fyrst og fremst að fjárhags­staða Strætó er slæm og við þurfum forgangs­raða fjár­magninu líka.“

Hangir þetta fyrst og fremst á því, að sökum slæmrar fjárhags­stöðu sé talið nauðsynlegt að skera niður þessa þjónustu?

„Það er blanda af þessu tvennu sem veldur því að við tökum þessa ákvörðun. Það var svo sem aldrei gert ráð fyrir að þetta myndi skila neinum hagnaði, þetta kostar nokkrar milljónir, hver helgi, svo við hefðum þurft að fá miklu fleiri en vagninn getur borið eða hækka gjaldið upp úr öllu valdi. Við vorum hins vegar að vonast eftir miklu betri nýtingu á þessu. Þetta er eins og ég segi, blanda af slæmri fjárhags­stöðu og forgagns­röðun fjármagns, og svo notkun.“

Telur að næturstrætó eigi sér framtíð

Áður hefur verið reynt að halda úti nætur­strætó og á síðustu misserum, áður en farið var af stað með verkefnið, hafði töluvert verið kallað eftir þessari þjónustu. Spurður hvort hann telji að nú sé fullreynt með nætur­strætó svarar Jóhannes því neitandi.

„Ég held að þetta verði örugglega einhvern tíma hluti af því framboði sem er í almennings­samgöngum á höfuð­borgar­svæðinu, svona þegar fjárhags­staðan og annað verður komið á réttan kjöl. En hvenær það verður er ómögulegt að segja.

Miðað við hvað við fengum margar beiðnir og óskir um þessa þjónustu þá kemur það okkur á óvart hversu notkunin var lítil. Það má segja að flestar leiðir hafi verið illa nýttar en það var þó ein leið sem var þokkalega nýtt, leiðin úr miðbænum og í Hafnar­fjörð. Það var eina leiðin sem komst næst því að standa undir væntingum.“

Kom þá ekki til greina að halda þeirri leið gangandi?

„Nei, við ákváðum í ljósi fjára­hagsstöðu að hætta þessu alveg.

Þykir rökin ekki halda

Glódís Guð­geirs­dóttirVara­for­maður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl hefur áhyggjur af ákvörðun Strætó.

Glódís Guðgeirs­dóttir, vara­formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, segir að ákvörðunin séu mikil vonbrigði og muni hitta marga illa fyrir. „Af hverju ekki að halda ásnum [leiðinni upp í Hafnar­fjörð] áfram gangandi fyrst hún var nálægt því að ná þessum viðmiðum? Eða að fækka ferðum til að auka nýtingu.“

Glódís bendir á að undan­farna mánuði hafi verið ítrekað sagt frá erfið­leikum fólks við að fá leigubíla úr miðborginni að næturlagi um helgar. Þá hafi verið greint frá fjölgun tilvika þar sem drukkið fólk hafi slasað sig við að keyra rafskútur um kvöld og nætur. Með því að leggja nætur­strætó af sé verið að gera fólki erfiðara fyrir og mögulega auka hættu á slysum eða því að fólk freistist til að keyra bíla drukkið.

Þá segir Glódís þessa ákvörðun skjóta skökku við í ljósi þess að nætur­strætó hafi meðal annars verið meðal kosninga­loforða tveggja þeirra flokka sem nú sitja í meirihluta borgar­stjórnar, Framsóknar­flokksins og Pírata. Borgar­fulltrúi Pírata, Alexandra Briem, er vara­formaður stjórnar Strætó. Stundin náði ekki í Alexöndru við gerð fréttarinnar.

„Almenn­ings­sam­göngur eru bara einn kostn­að­ar­liður þess að búa í sam­fé­lagi“
Glódís Guð­geirs­dóttir
vara­for­maður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl

Hvað varðar þau viðmið sem Strætó hafi sett sér, um 50 manna fjölda í hverri ferð, segir Glódís að henni þyki þessi rök ekki halda. „Þetta eru almennings­samgöngur og þær þurfa ekki og eiga ekki endilega að standa undir sér. Við borgum undir alls konar almanna­þjónustu, heilbrigðis­þjónustu til að mynda, og almennings­samgöngur eru bara einn kostnaðar­liður þess að búa í samfélagi, að fólk komist öruggt til og frá heimili sínu með almennings­samgöngum.“ 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár