Smitum fjölgar ört í Svíþjóð

Vonir um að Svíþjóð myndi ekki verða fyrir haust­bylgju kórónu­veiru­faraldursins í Evrópu virðast farnar, en daglegum smitum fer þar ört fjölgandi á mörgum stöðum landsins.

Anders Tegnell, sóttvarnarlæknir Svíþjóðar.
Anders Tegnell, sótt­varn­ar­læknir Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Vikulegur fjöldi nýrra COVID-19 smita í Svíþjóð er nú á svipuðum slóðum og hann var í fyrstu bylgju faraldursins í byrjun apríl þar í landi. Hröð aukning smita í Stokk­hólmi, Uppsölum og á Skáni vekja ugg, en land­læknir bendir á háskóla­nema og hokkíspilara sem hugsanlega smitbera.

Útbreitt ónæmi hindraði ekki nýja bylgju

Fyrir mánuði síðan greindi Kjarninn frá fækkun smita í Svíþjóð, á meðan þeim fór fjölgandi í Danmörku. Anders Tegnell sóttvarnar­læknir Svíþjóðar mat það svo að útbreitt ónæmi fyrir veirunni þar í landi skýra mismuninn í fjölgun smita. Enn fremur sagðist hann ekki óttast aðra stóra bylgju veirunnar í landinu, þótt hann taldi líklegt að stað­bundin hópsmit gætu komið upp.

Þrátt fyrir yfir­lýsingar Tegnell virðist svo vera sem að önnur bylgja sé nú hafin í Svíþjóð, en nýjum smitum hefur fjölgað ört þar í landi á síðustu dögum samkvæmt tölum frá land­læknis­embætti landsins.

Sjá má vikulegan fjölda smita í Svíþjóð frá febrúar­byrjun á mynd hér að neðan, en samkvæmt henni greindust rúm 3.600 tilfelli í síðustu viku, sem er svipað mikið og í fyrstu bylgju faraldursins í apríl og maí þar í landi.

Smitin eru þó ekki enn orðin jafnmörg og þau voru á hápunkti faraldursins í Svíþjóð júní síðastliðnum, en þá greindust rúmlega sjö þúsund smit á viku.

Aukningin er hröð í höfuðborg landsins, Stokk­hólmi, þar sem vikuleg tilfelli eru nú fjórum sinnum fleiri en þau voru í byrjun september­mánaðar. Einnig hefur smitum fjölgað hratt á Skáni í suður­hluta landsins, en þar hefur fjöldi nýrra smita orðið jafnhár og hann var á hápunkti faraldursins fyrr í ár.

Í Uppsölum má líka sjá öra fjölgun nýrra tilfella, en ákveðið var í dag að fresta öllum aðgerðum í háskóla­sjúkra­húsinu í borginni sem ekki eru nauðsynlegar. Samkvæmt Johan Nöjd, smit­sjúkdóma­lækni sjúkra­hússins hefur fjöldi innlagna þeirra sem eru sýktir af kórónu­veirunni aukist hratt, en 20 manns liggja þar inni þessa stundina.

Á blaðamanna­fundi í gær sagði Tegnell að Stokk­hólmur, Skánn, Uppsalir og Uppland standi út úr í fjölda smita, en fjölgunin bendi til þess að smitin séu tiltölu­lega útbreidd í samfélaginu og ekki stað­bundin lengur.

Hokkílið og stúdentar

Land­læknis­embætti Svíþjóðar segist hafa skoðað hvað gæti legið að baki nýlegri aukningu smita og segir að vísbendingar séu frá Svíþjóð, Noregi og Finnlandi um að ýmis íþrótta­starfsemi gæti átt í sök.

Embættið nefnir sérstak­lega hokkílið, þar sem hópsýkingar hafa myndast. Tegnell bætir þó við að ekki sé talið að neinn hafi smitast á skauta­svellunum sjálfum, líklegra er að smit hafi borist á milli manna innan sömu liðanna. „Við erum í samræðum við Íþrótta­samband Svíþjóðar um mögulegar ástæður að baki smitsemi hokkísins,“ sagði sóttvarnar­læknirinn svo.

Einnig benti Tegnell á að einka­samkvæmi og veislur meðal námsmanna hafi leitt til frekari útbreiðslu smitanna í Uppsölum á blaðamanna­fundi í gær. Nöjd sagðist þá einnig vera í samræðum við Tegnell um mögulega takmörkun á opnunar­tíma veitinga- og skemmtistaða í borginni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár